Innskráning

Vegna óskilamuna sumarsins úr sumarbúðum og Ævintýranámskeiðum KFUM og KFUK

06.09.2010
Eftir: Soffía Magnúsdóttir

Athygli er vakin á því að hægt er að vitja óskilamuna frá nýliðnu sumri úr sumarbúðum og Ævintýranámskeiðum KFUM og KFUK í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að  Holtavegi 28 í Reykjavík til 1. október 2010.

Símanúmer í Þjónustumiðstöðinni er 588-8899, og opnunartími hennar er alla virka daga frá kl. 9:00 til kl.17:00.

Eftir 1. október 2010 verður ósóttum óskilamununum ráðstafað.

(Þær sumarbúðir og námskeið sem þetta á við um eru: Vatnaskógur, Vindáshlíð, Kaldársel, Ölver, Ævintýranámskeið Holtavegi og Ævintýranámskeið Hjallakirkju).

Varðandi óskilamuni úr sumarbúðunum að Hólavatni, er hægt að vitja þeirra í félagsheimili KFUM og KFUK að Sunnuhlíð, Akureyri.

Varðandi óskilamuni frá Ævintýranámskeiði í Reykjanesbæ, gefur Sveinn Valdimarsson allar upplýsingar í síma 842-3610.

Flokkur: Æskulýðsstarf