Innskráning

Opið hús í Vindáshlíð um bænadaga!

30.03.2009
Eftir: Hólmfríður Petersen
Opið hús!

Opið hús!

Opið hús verður í Vindáshlíð fyrir fjölskyldur félagsmanna í KFUM og KFUK um bænadagana.  Dagskráin er frjáls, en í boði verður:

upplestur úr passíusálmunum, útivist og gönguferðir, vinabönd, perluföndur, spil, leikir, búningar, frjálsir leikir í íþróttahúsi, eggjamálun, helgileikur um píslargönguna á föstudaginn langa, tónlist, söngvar og afslöppun.

Dagskráin hefst með kvöldmat miðvikudagskvöldið 8. apríl og lýkur með morgunverði laugardaginn 11. apríl.

Verði er haldið í algjöru lágmarki og eingöngu er greitt fyrir mat.  Matseðill verður hófstilltur í anda föstunnar.  Verð fyrir fullorðna kr. 1500 per heilan dag.  Verð fyrir börn á aldrinum 4- 12 ára kr. 700 per dag. 

Skráning og nánari upplýsingar í síma 588 8899 eða á skraning(hjá)kfum.is.  Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 3. apríl 2009. 

Nánari upplýsingar má finna hér

Flokkur: Vindáshlíð