Innskráning

Met slegið á fyrsta skráningardegi í sumarbúðirnar - um 1100 börn skráð

28.03.2009
Eftir: Ástríður Jónsdóttir
Skemmtidagskrá var í kjallarasal.

Skemmtidagskrá var í kjallarasal.

Löng röð myndaðist fyrir utan húsið.

Löng röð myndaðist fyrir utan húsið.

Krakkarnir skemmtu sér vel í hoppuköstulunum.

Krakkarnir skemmtu sér vel í hoppuköstulunum.

Það var mikið um að vera á vorhátíðum KFUM og KFUK í dag á Holtavegi og á Akureyri.  Fleiri hundruð manns mætu til að skrá börn sín í sumarbúðirnar og hafði löng röð myndast þegar húsið opnaði.  Alls voru skráð um 1100 börn í sumarbúðirnar og fylltist strax í tvo flokka í Vindáshlíð og einn í Ölver.  Vinsældir sumarbúða og leikjanámskeiða KFUM og KFUK aukast ár frá ári enda er alltaf jafn gaman í KFUM og KFUK.

Mikil og skemmtileg dagskrá var á vorhátíðunum, hoppukastalar vöktu mikla lukku en auk þess var í boði andlitsmálning, veltibíllinn, spurningakeppni, skemmtiatriði og kaffihús.  Eitthvað fyrir alla.

Skráning í sumarbúðirnar heldur áfram á mánudaginn í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK og í s. 588 8899.

Flokkur: Æskulýðsstarf