Innskráning

Landsfundur KFUM og KFUK, laugardag kl: 11:00

16.04.2010
Eftir: Ástríður Jónsdóttir

KFUM og KFUK býður félagsfólk velkomið á landsfund félagsins sem fram fer laugardaginn 17. apríl í félagshúsinu á Holtavegi 28 og hefst kl. 11:00

Yfirskrift fundarins er: "Öll veröldin fagni fyrir Drottni".

Dagskrá er sem hér segir

10:30            Kjörgögn afhent – heitt á könnunni.

11:00    Ávarp formanns, Tómasar Torfasonar, og setning landsfundar.
            Hugleiðing og bæn: Sr. Valgeir Ástráðsson.


11:30-16:00    Aðalfundarstörf: 
a)    Kosning fundarstjóra og fundarritara 
b)    Starfsskýrsla stjórnar 
c)    Reikningar kynntir og lagðir fram til samþykktar 
d)    Fjárhags- og starfsáætlun 2010 kynnt og lögð fram til samþykktar 
e)    Stjórnarkjör 
f)    Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga 
g)    Ákvörðun árgjalds 
h)    Önnur mál. 


Inn á milli dagskrárliða tökum við hlé til að borða saman og taka þátt í störfum YERT hópsins sem greint er frá í fundarboðinu.

Flokkur: Fullorðinsstarf