Innskráning

Góð skráning í sumarbúðirnar tæplega 1900 börn skráð - 10 dvalarflokkar uppbókaðir!

19.04.2010
Eftir: Starfsmaður Ölvers

KFUM og KFUK þakkar frábæra skráningu í sumarbúðir félagsins nú þegar hafa tæplega 1900 börn verið skráð í sumarbúðastarfið. Undirbúningur starfsins er í fullum gangi og mikil hugur í starfsfólki sumarsins.

10 flokkar eru þegar uppbókaðir en engin ástæða er til að örvænta því en má velja úr 40 dvalarflokkum auk um 20 leikjanámskeiða.

Námskeið sumarbúðastarsfólks eru í fullum undirbúningi  enda gerir KFUM og KFUK nú sem fyrr miklar faglegar kröfur á allt starfsfólk sumarbúðanna.

Skráning fer fram á skraning.kfum.is eða í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í s. 5 88 88 99

Flokkur: Æskulýðsstarf