Innskráning

Frábær skráning í kvennaflokk í Vindáshlíð!!

24.08.2009
Eftir: Hólmfríður Petersen
Skráning í fullum gangi!

Skráning í fullum gangi!

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í kvennaflokk í Vindáshlíð sem haldin verður næstu helgi.  Skráningu lýkur klukkan 12.00 á hádegi fimmtudaginn 27. ágúst.  Aðeins örfá pláss laus!  Dagskrá kvennaflokksins er afar skemmtileg og tengist á ýmsan hátt Hallgrími Péturssyni.  Dr. Margrét Eggertsdóttir ræðir um Hallgrím og börn og Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur ræðir um konuna hans Hallgríms.  Boðið verður upp á gönguferðir, brennó, skemmtilegar samverustundir og góðan mat.  Auk þess fá þátttakendur hagnýt ráð um glæsileika á krepputímum.  Í tilefni af 50 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju í Vindáshlíð mun Sr. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti blessa kirkjuna í guðsþjónustu á sunnudeginum. 

Flokkur: Vindáshlíð