Innskráning

Æskulýðsstarf á vorönn hefst í dag!

11.01.10

Eftir: Ástríður Jónsdóttir

Í dag byrjar æskulýðsstarfið aftur eftir gott jólafrí.  Dagskrár deildanna eru bráðskemmtilegar og þar er að finna ýmislegt spennandi.  Á vorönninni verða nokkrir sameiginlegir viðburðir s.s. brennómót, landsmót unglingadeilda og vorferðir yngri deilda sem ávallt er beðið með talsverðri eftirvæntingu.

Við hlökkum til skemmtilegrar vorannar - sjáumst í KFUM og KFUK :)

Flokkur: Æskulýðsstarf