Innskráning

11. flokkur í Vindáshlíð hafinn!

20.08.2009
Eftir: Berglind Ólöf

Í gönguferðinni

Það voru 23 hressar stelpur sem komu upp í Vindáshlíð um hádegisbilið í gær. Þær komu sér strax fyrir og kynntust bænakonunni sinni, herbergisfélögunum og nánasta umhverfi.  Eftir að hafa borðað ljúffengan hádegisverð var farið í göngu upp með læknum þar sem stelpurnar fengu að vaða og skemmtu þær sér konunglega, vel klæddar í rigningunni. Keppt var í kraftakeppni og limbó eftir kaffi  og brennókeppnin fór af stað. Í kvöldmat var gratíneruð ýsa sem stelpurnar hámuðu í sig með bestu lyst. Á kvöldvöku sýndu svo tvö herbergi atriði við mikla kátínu áhorfenda. Stelpurnar  voru svo komnar í ró um kl. 23:00.

Hér eru myndir dagsins.

Flokkur: Vindáshlíð