Skógarmenn KFUM bjóða nú í fyrsta skipti uppá aðventudaga í Vatnaskógi. Markmiðið er að bjóða fjölskyldum uppá jólaleg rólegheit í fallegu umhverfi Vatnaskógar. Nánari upplýsingar verða á Litla jólabarn – Aðventudagar í Vatnaskógi á Facebook.

Hugmynd af dagskrá

Laugardagur 3. desember

Kl. 14:00 – 15:00 Mæting í Vatnaskóg – kaffi
– Jólaföndur og jólabakstur í Matskála – íþróttahúsið er opið
– Útivera – jólatré Vatnaskógar valið og skreytt

Kl. 18:00 Kvöldverður
– Jólakvöldvaka við arineld
– Kyndlaganga
– Piparkökukvöldhressing
– Svefntími fyrir þau yngstu
– Foreldraspjall

Sunnudagur 4. desember

Kl. 9:00 – 10:00 Morgunverður

Kl. 10:00 Aðventustund
– Heimatilbúnir jólatónleikar
– Helgileikur
– Íþróttahúsið opið
– Útivera

Kl. 13:00 Hádegisverður
– Heimferð

Skráning

– Á skrifstofu KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða með tölvupósti: skrifstofa@kfum.is

Verð

– 7.500 krónur fyrir 13 ára og eldri
– 5.000 krónur fyrir börn 12 ára og yngri,
– Frítt fyrir 5 ára og yngri.