Vindáshlíð

Kaffisala Vindáshlíðar 2. júní

Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin í Vindáshlíð í Kjós, sunnudaginn 2. júní kl. 14:00-17:00. Að venju verður boðið upp á stórkostlegt kaffihlaðborð. Verð kr. 1500 fyrir 14 ára og eldri og kr. 750 fyrir 6-13 ára.
Kaffisalan hefst á messu kl. 14:00 í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð og mun  sr. Einar Sigurbjörnsson og sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir sjá um hana. Íþróttahúsið verður opið, hægt er að skoða staðinn að utan sem innan, spila jafnvel brennóleik eða skoða göngustíga og rjóður í grenndinni.

Takið sunnudaginn 2. júní frá fyrir skemmtilegan sunnudagsbíltúr!
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Vindáshlíð

Starfsmannanámskeið sumarbúðanna


Þriðjudaginn 16. apríl var fyrsti námskeiðsdagur fyrir starfsfólk sumarbúðanna 2013. Um fjörtíu starfsmenn úr öllum sumarbúðum félagsins komu saman og meðal efnis þennan fyrsta dag var fræðsla um það hver við erum og hvað við boðum. Þá voru kenndir ýmsir leikir sem henta í sumarbúðastarfi bæði inni og úti.

Jólatrésala í Vindáshlíð

Laugardaginn 8. desember 2012 kl. 11.00-15.00 verður haldin hin árlega jólatréssala í Vindáshlíð. Þá gefst fólki tækifæri til að koma í Vindáshlíð og fella sitt eigið jólatré.

Fjáröflunartónleikar til styrktar Vindáshlíð þriðjudaginn 23. október

 

Ungbarnaflokkar í Vindáshlíð í október

 

Í október verður boðið upp á tvo ungbarnaflokka í Vindáshlíð. Ungbarnaflokkarnir eru fyrir mæður með ungabörn

Fjáröflunartónleikar til styrktar Vindáshlíð þriðjudaginn 23. október 2012

Þriðjudaginn 23. október verða haldnir fjáröflunartónleikar í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 til styrktar starfinu í Vindáshlíð. Allur ágóði af tónleikunum rennur til ytra viðhalds á aðalskálanum í Vindáshlíð.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og er aðgangseyrir 1.500 kr. Veitingasala, happdrætti og spennandi dagskrá: Helga Vilborg og Sálmavinafélagið, Ingunn Huld, Halli Reynis, Blússveit Þollýar, White Signal og Hafdís Huld.

Haustkvöld í Hlíðinni – Fyrsti fundur AD KFUK verður í kvöld í Vindáshlíð

Stjórn Vindáshlíðar býður allar konur velkomnar á fyrsta AD KFUK fund vetrarins sem verður í Vindáshlíð þriðjudaginn 2. október. Rúta fer frá húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28, kl. 18:00 og er áætluð heimkoma um kl. 23.

Óskilamunir frá sumarstarfinu

Við viljum minna á að síðasti dagur til að vitja óskilamuna frá sumarstarfi KFUM og KFUK er 1. október ´12.

Mikið magn hefur safnast upp í Þjónustumiðstöðinni og viljum við hvetja foreldra til koma og sækja þessa muni. Í október verður óvitjuðum óskilamunum ráðstafað til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Mæðgnaflokkur í Vindáshlíð 14.-16.september 2012

Mæðgnaflokkur verður haldinn í Vindáshlíð núna um helgina 14.-16.sept fyrir allar mæðgur á aldrinum 6-99 ára. Farið verður á einkabílum í Vindáshlíð. Verð er 11.000 kr. á mann með gistingu, dagskrá og fullu fæði. Hægt er að ganga frá skráningu hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða með því að smella hér.

Kvennaflokkur í Vindáshlíð 31. ágúst – 2. september: Glæsileg dagskrá

Kvennaflokkur verður haldinn í Vindáshlíð helgina 31. ágúst – 2. september. Yfirskrift helgarinnar er „Kraftur kvenna“. Allar konur á aldrinum 18-99 ára eru hjartanlega velkomnar.  Skráning er í fullum gangi í síma 588-8899 og á skrifstofa@kfum.is og hér á heimasíðunni! Verð aðeins kr. 12.000 með gistingu, dagskrá og fullu fæði.

9.flokkur – Vindáshlíð: Ævintýraflokkur, veisludagur.

Í dag var veisludagur hjá þessum frábæra flokk sem hefur dvalið hjá okkur þessa vikuna.
Stelpurnar fengu allar að sofa til klukkan tíu í morgun og svo var veisludagsmorgunmatur klukkan hálf ellefu. Þá var boðið uppá Kókópöffs ásamt hefðbundnum morgunmat. (Cornflakes, Cheerios, Súrmjólk) Að sjálfsögðu voru þær allar mjög ánægðar með morgunmatinn ;)
eftir morgunmat var haldið í úrslitakeppnirnar í Brennó og íþróttakeppnir voru haldnar fyrir þær sem höfðu áhuga á að taka þátt.

9.flokkur – Vindáshlíð: Ævintýraflokkur, dagur 4.

Gleðileg jól og til hamingju með vígsluafmælið kæra kirkja

Í dag eru allar stelpurnar búnar að sofa í 3 nætur í dvalarflokki í Vindáshlíð og eru því formlega orðnar Hlíðarmeyjar og því merkisdagur fyrir þær.

Í dag ákváðu foringjarnir líka að halda jól fyrir stelpurnar. Þetta byrjaði á því að þær voru vaktar mjög seint og beðnar að mæta strax í setustofuna okkar á náttfötunum. Þar söfnuðust þær saman og þegar allar voru komnar þá var opnað inní matsalinn með jólakveðjum, jólalögum og fullskreyttu jólatré á miðju gólfinu.

9.flokkur – Vindáshlíð: Ævintýraflokkur, dagur 3.

Hér var vakið á hefðbundnum tíma í morgun, eða klukkan níu. Stelpurnar vöknuðu flestar hressar og kátar og mættu í morgunmat, fánahyllingu og biblíulestur sem fjallaði um við eigum að elska hvert annað. Svo var brennókeppni og húllahringja keppni og setustofusamvera fyrir þær sem vildu sitja og spjalla, hnýta vinabönd, spila eða gera annað skemmtilegt. Í hádegismatinn var svo hakk og spagettí, ásamt heitu brauði með pepperoni og/eða osti sem var mjög vinsælt.

9.flokkur – Vindáshlíð: Ævintýraflokkur, dagur 2

Dagurinn byrjaði vel hjá okkur. Allar stelpurnar fengu að sofa til hálf tíu en þó voru nokkrar sem vöknuðu fyrr og höfðu það huggulegt í setustofunni fram að morgunmat.
Dagskráin fyrir hádegi var með hefðbundnu sniði, morgunmatur, fánahylling, biblíulestur og svo íþrótta og brennókeppnir. Stelpurnar voru duglegar að taka þátt og skemmtu sér vel.
Eftir hádegi var farið í upplifunarleik sem stundum er nefndur hermannaleikur. Þá fá stelpurnar að kynnast því að það hafa ekki allir það jafn gott í heiminum og þær fá að upplifa að vera á flótta. Leikurinn fór mjög vel fram og þær sem tóku þátt skemmtu sér mjög vel.

9.flokkur – Vindáshlíð: Dagur 1

Það var hress hópur stúlkna sem mætti í Vindáshlíð í ævintýraflokk í gær. Við komuna var hefðbundin dagskrá, farið yfir reglur á staðnum og öllum raðað í herbergi. Við pössuðum að sjálfsögðu að allar vinkonur yrðu saman og allir fóru sáttir í herbergin að koma sér fyrir. Í hádegismatinn fengu þær grjónagraut og borðuðu mjög vel af honum.
Eftir hádegið var frjáls tími í smá stund og svo var Ratleikur og þar keppa herbergin sín á milli um bestu svörin við ýmsum skemmtilegum þrautum.