Ölver

Ölversbingó Sunnudaginn 5. maí

Sunnudaginn 5.maí kl. 15:00-16:30 verður glæsilegt BINGÓ í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Bingóið er haldið til fjáröflunar fyrir Sveinusjóð, en Sveinusjóður var stofnaður til að safna fé til byggingar nýju íþróttahúsi í Ölveri.
Vinningarnir verða stórglæsilegir, til dæmis vikudvöl í Ölveri, nammi frá Innnes, gjafir frá Vífilfelli og Eddu, bækur eftir Sigurbjörn Þorkelsson, Subway-gjafabréf, gjöf frá kirkjuhúsinu og Puma vörur.

Spjaldið kostar 500 kr. en þrjú spjöld verða á fjölskyldutilboði 1.000 kr.

Starfsfólk sumarsins og stjórn Ölvers hvetur allt félagsfólk til að mæta og vera með í skemmtilegri uppákomu.

Starfsmannanámskeið sumarbúðanna


Þriðjudaginn 16. apríl var fyrsti námskeiðsdagur fyrir starfsfólk sumarbúðanna 2013. Um fjörtíu starfsmenn úr öllum sumarbúðum félagsins komu saman og meðal efnis þennan fyrsta dag var fræðsla um það hver við erum og hvað við boðum. Þá voru kenndir ýmsir leikir sem henta í sumarbúðastarfi bæði inni og úti.

Mæðgna- og mæðginahelgi í Ölveri felld niður

Mæðgna – og mæðginahelgi sem halda átti í Ölveri nú um helgina, 12.-14. apríl, hefur verið felld niður vegna dræmrar skráningar. Starfsmaður skrifstofu KFUM og KFUK mun hafa samband við þá sem nú þegar eru skráðir og endurgreiða þeim þátttökugjaldið.

Mæðgna- og mæðginahelgin 12.-14. apríl

Helgina 12.-14. apríl verður mæðgna- og mæðginahelgi haldin í Ölveri. Þá helgi býðst mæðrum að koma með börnum sínum í Ölver og eiga góða stund saman.

Óskilamunir frá sumarstarfinu

Við viljum minna á að síðasti dagur til að vitja óskilamuna frá sumarstarfi KFUM og KFUK er 1. október ´12.

Mikið magn hefur safnast upp í Þjónustumiðstöðinni og viljum við hvetja foreldra til koma og sækja þessa muni. Í október verður óvitjuðum óskilamunum ráðstafað til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Mæðgna- og mæðginaflokki frestað fram á vor

Stjórn Ölvers hefur tekið ákvörðun um að fresta mæðgna- og mæðginaflokki sem átti að vera helgina 7.-9. september af óviðráðanlegum aðstæðum.

Flokkurinn mun vera haldinn í vor og verður nánari dagsetning og dagskrá auglýst þegar nær dregur.

Haft verður samband við þær sem hafa skráð sig og fá þær að sjálfsögðu dvalargjaldið endurgreitt.

Við biðjumst velvirðingar á þessu og óskum þess að þær mæður og börn þeirra sem höfðu skráð sig til leiks geti verið með í vor.

Mæður, dætur og synir í Ölveri 7.- 9. september

Dagana 7.- 9. september verður mæðgna- og mæðginahelgi í Ölveri.

Þá gefst mæðrum tækifæri á að dvelja með börnum sínum í Ölveri og njóta alls þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem felur m.a. í sér morgunleikfimi, morgunstundir, kvöldvöku, gönguferð, veislukvöldverð, náttfatapartý og ýmislegt fleira. Á kvöldvökum verða Ölverslögin sungin og skemmtilegir leikir og leikrit á dagskránni. Forstöðukona helgarinnar verður Svava Sigríður Svavarsdóttir. Mæður, dætur og synir eru hvött til að kynna sér mæðgna- og mæðginahelgina.

Skráning er á heimasíðu KFUM og KFUK og hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 og á netfanginu skrifstofa@kfum.is .

Verið hjartanlega velkomin á mæðgna-og mæðginahelgi!

Kaffisala Ölvers næsta sunnudag, 26. ágúst: Allir velkomnir!

Hin árlega kaffisala Ölvers fer fram nú næsta sunnudag, 26. ágúst kl. 14-17.
Á kaffisölunni gefst tækifæri á að heimsækja yndislegt umhverfi og húsakost Ölvers, gæða sér á ljúffengum tertum, kökum og öðru bakkelsi og styrkja um leið starfsemina þar.

10.flokkur – Ölver: Lokadagur Ævintýraflokks Unglinga

Það voru blendnar tilfinningar í brjóstum stelpnanna okkar við vakningu í morgun. Eftir morgunverðinn skiptum við okkur í hópa til undirbúnings guðsþjónustunnar; danshóp, sönghóp og bænahóp. Síðan hófst hin ofurspennandi foringjakeppni, þar sem sigurlið flokksins í brennóbolta keppir við foringja flokksins, sá síðarnefndi vann. Þá kepptu foringjarnir einnig við allan hópinn og unnu með því að hver foringi átti fleiri líf.

10.flokkur – Ölver: Hæfileikaríkar sunddrottningar

Eftir langan og viðburðaríkan dag í gær, fengu stúlkurnar að sofa út í morgun. Um hálfellefu voru þær síðustu drifnar í morgunverð. Veðrið var gott og einhverjar fóru út að leika sér. Eftir pastarétt í hádeginu, beið okkar rúta sem fór með okkur í sundlaugina á Akranesi og var gott að fá að þvo hárið og ærslast í lauginni. Þar átti sér stað óformleg sundkeppni.
Við heimkomuna aftur í Ölver beið girnilegt bakkelsi í drekkutímanum.

10.flokkur – Ölver: Regnbogadagur og veislukvöld

Fjölbreytileiki mannlífsins og litagleði var þema dagsins. Eftir morgunverð og fánahyllingu, var Biblíulestur sem að þessu sinni fjallaði um sýn Krists á okkur, börn Guðs.

10.flokkur – Ölver: Hárgreiðsla, blómaskreytingar og náttfatapartý

Viðburðaríkur dagur, nóg af skemmtilegum uppákomum og góður andi á meðal stelpnanna. Eftir morgunmat og fánahyllingu var Biblíulestur, sem að þessu sinni fjallaði um hugrekki og það að standa með þeim sem minna mega sín þrátt fyrir áhættu á að einhverjum finnist það ekki nógu svalt. Einnig ræddum við það að stundum á unglingsárunum upplifum við okkur sem miðdepil alheimsins og höldum að allir fylgist með öllu sem við gerum og öllu sem við klæðumst, þegar jafnaldrar okkar eru einnig í sömu hugleiðingunum.

10.flokkur – Ölver: Fimmtudaginn 9. ágúst

Ölversstúlkur í óvissuferð
Það voru glaðar stúlkur sem vöknuðu á þessum þurrasta degi flokksins hingað til. Eftir morgunverð og fánahyllingu var Biblíulestur, þar sem textinn í Matteusarguðspjalli 25. kafla um hjálpsemi og náungakærleik, var tekinn fyrir. Í tenglsum við það að kunna að fletta upp í Biblíunni, flettum við síðan upp á og lásum texta sem ortir hafa verið sálmar upp úr. Þeir voru að sjálfsögðu sungnir. Er ég leitaði vinar, Er ég horf’ á himininn, Drottinn er minn hirðir. Síðan var farið í brennubolta í íþróttahúsinu.

10.flokkur – Ölver: Rugludagur að kvöldi kominn.

Það er óhætt að segja að aðlögunarhæfni stúknanna sé mjög mikil. Í dag var næstum ekkert á sínum stað á dagskránni og því erfitt fyrir stúlkurnar að giska á hvað beið þeirra. Við hófum þó daginn á hafragraut, bláum hafragraut vegna möguleikans á að handboltalandsliðið okkar keppi í bláum búningum á Ólympíuleikunum í dag. Að fánahyllingu lokinni var boðið upp á að horfa á leikinn, sem var gríðarlega spennandi og einnig að gera origami með Lenu sem er sjálfboðaliði hjá okkur.

10.flokkur – Ölver: Glaðar stúlkur komnar í Ölver

Hér í Ölveri hefur allt iðað af lífi á þessum fyrsta degi Ævintýraflokks unglinga. 25 kátar og eftrvæntingafullar stúlkur fylltu staðinn gleði og ljóst er að vikan okkar verður allt annað en róleg.
Eftir að búið var að raða í herbergin, var vel borðað af súpu og smurbrauði áður en farið var í rannsóknarleiðangur um landareignina umhverfis sumarbúðirnar og farið í leiki. Eftir kaffi var ýmislegt brallað og stúlkurnar í Fjallaveri æfðu atriði fyrir kvöldvökuna.