
Þriðjudaginn 16. apríl var fyrsti námskeiðsdagur fyrir starfsfólk sumarbúðanna 2013. Um fjörtíu starfsmenn úr öllum sumarbúðum félagsins komu saman og meðal efnis þennan fyrsta dag var fræðsla um það hver við erum og hvað við boðum. Þá voru kenndir ýmsir leikir sem henta í sumarbúðastarfi bæði inni og úti.
Kaldársel
Starfsmannanámskeið sumarbúðanna
Óskilamunir frá sumarstarfinu
Við viljum minna á að síðasti dagur til að vitja óskilamuna frá sumarstarfi KFUM og KFUK er 1. október ´12.
Mikið magn hefur safnast upp í Þjónustumiðstöðinni og viljum við hvetja foreldra til koma og sækja þessa muni. Í október verður óvitjuðum óskilamunum ráðstafað til Hjálparstarfs kirkjunnar.
6.flokkur – Kaldársel: Fjör í ævintýraflokki
Ævintýraflokkur fór vel af stað í Kaldárseli á mánudaginn var.
Börnin byrjuðu á því að koma sér vel fyrir og allt gekk eins og í sögu. Þá tók við upphafsstund og smá samhristingur þar sem allir skemmtu sér vel og fengu tækifæri til að kynnast hvert öðru.
Eftir hádegi var farið í ævintýraferð í Kúadal og þar var brugðið á leik og allir voru í góðum gír.
Sérlega spennandi ævintýraflokkur í Kaldárseli 9 – 13. júlí
Dagana 9 til 13. júlí verður haldinn sérstaklega spennandi ævintýraflokkur í Kaldárseli fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 10-13 ára. Ævintýraflokkurinn er sérsniðinn til að höfða til barna á þessum aldri.
Til viðbótar við hefðbundið sumarbúðarstarf er m.a. boðið upp á fjársjóðsleit, varðeld, grillaða sykurpúða, létta næturgöngu, fjörugan vatnsslag, þrautabraut, diskótek og jafnvel gist eina nótt í helli eða úti undir berum himni (valfrjálst).
Undirritun samnings í Kaldárseli

Síðastliðinn föstudag þann 22. júní skrifuðu Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Hreiðar Örn Zoega Stefánsson formaður Kaldársels undir samning um afnot Hafnarfjarðarbæjar af húsnæði félaganna í Kaldárseli fram á sumar 2013.
3.flokkur – Kveðja úr Kaldárseli
Nýtt í Kaldárseli – Prakkarflokkur 25 – 29. júní.
Dagana 25 – 29.
júní verður haldinn í fyrsta sinn svokallaður Prakkaraflokkur fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 8-11 ára.
Prakkaraflokkur er sérsniðinn til að höfða til barna á þessum aldri. Til viðbótar við hefðbundið sumarbúðarstarf verður boðið upp á dagskrárliði þar sem sérstök áhersla verður á óvæntar uppákomur sem glæða þennan einstaka flokk miklu lífi, skilja eftir ógleymanlegar stundir og frábærar minningar sem enginn má láta framhjá sér fara.
1.flokkur – Veisludagur í Kaldárseli
Í dag höfum við notið veðurblíðunnar hér í Kaldárseli og skelltum okkur því í gönguferð upp á Sandfell. Þar sem að seinasta kvöld flokksins er í kvöld þá er við hæfi að halda upp á það og því verður slegið til veislukvöldverðar með viðeigandi hátíðardagskrá og kvöldvöku.
Myndirnar eru komnar á netið og þær má nálgast hér.
1.flokkur – Stelpur í stuði í Kaldárseli fara vel af stað

Í gær, föstudag 8.júní hófst fyrsti flokkur sumarsins í Kaldárseli þegar tuttugu frískar stelpur heldu á vit ævintýranna upp í Kaldársel.
Þegar þangað var komið fóru stelpurnar að koma sér fyrir og eftir hádegi var haldið í ævintýraferð. Síðan var ýmislegt í boði, s.s. hoppukastali, kofagerð, listasmiðja og fleira.
Dagurinn í dag er einnig búinn að vera frábær og stelpurnar og starfsmenn í miklu stuði. Í dag var förinni heitið í Valaból þar sem brugðið var á leik og hellar skoðaðir. Stelpurnar hafa verið afar duglegar í listasmiðjunni og föndruðu mörg falleg barmmerki, og í dag var keramik-gerð tekin fyrir.
Vinnudagur í Kaldárseli 28.maí: Allir velkomnir
Tilkynning frá stjórn Kaldársels:
Næsta mánudag, 28. maí 2012 kl.13-18 verður vinnudagur í Kaldárseli.
Þá ætlum við öll að mæta í vinnugallanum og taka til hendinni við hin ýmsu verk sem þarf að sinna fyrir sumarið. Þú kemur með góða skapið og vinnuandann og við sjáum um verkefni og hressingu handa þér.
Sumarbúðir KFUM og KFUK á Facebook
Nú hafa allar sumarbúðir KFUM og KFUK sett upp Facebook síður. Þar má finna upplýsingar, tilkynningar og vísanir í fréttir um hverjar sumarbúðir fyrir sig.
Skráning í sumarbúðir hefst á morgun, 24. mars: Hagnýtar upplýsingar
Nú er aðeins sólarhringur þar til skráning í sumarbúðir og leikjanámskeið KFUM og KFUK fyrir sumarið 2012 hefst.
Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir forráðamenn þátttakenda fyrir skráningu:
Gauraflokkur og Stelpur í stuði

Sumarbúðir KFUM og KFUK bjóða upp á tvo flokka í sumar sem eru skipulagðir til að leyfa börnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir að njóta sín sem best.
Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK hefst með Vorhátíð á laugardaginn 24. mars
Næsta laugardag, 24. mars kl.12 hefst skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK: Ölver, Vatnaskóg, Hólavatn, Vindáshlíð og Kaldársel og leikjanámskeið fyrir sumarið 2012.
Aðalfundur Kaldársels í kvöld, 14. mars á Holtavegi
Í kvöld, miðvikudaginn 14. mars fer aðalfundur Kaldársels fram í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 20.






