Hólavatn

Höldur gefur börnum á Hólavatni sumargjöf

bilar
Það er gömul og góð íslensk hefð að gefa sumargjafir og Bílaleiga Akureyrar – Höldur ehf lét sitt ekki eftir liggja í vikunni þegar Steingrímur Birgisson forstjóri færði sumarbúðum KFUM og KFUK á Hólavatni þrjá nýja hjólabíla að gjöf.
Jóhann Þorsteinsson, starfsmaður KFUM og KFUK á Norðurlandi veitti bílunum viðtöku og þakkaði kærlega stuðninginn fyrir hönd barnanna á Hólavatni.

Nýr ævintýraflokkur á Hólavatni

3.fl.4.d 129Skráning í sumarbúðirnar Hólavatni er nú í fullum gangi og upp er komin sú staða að ævintýraflokkur fyrir stelpur 8.-12. júlí er yfirfullur og kominn biðlisti. Í ljósi þess hve mikil eftirspurn er eftir ævintýraflokk fyrir stelpur hefur stjórn Hólavatns ákveðið að breyta 4. flokk á flokkaskránni í ævintýraflokk fyrir 11-13 ára stelpur. Vonum við að þessi breyting komi sér ekki illa fyrir þær stelpur sem þegar hafa skráð sig í 4. flokk enda bara jákvætt að bæta smá viðbótar ævintýri við dvölina.

Þá hafa verið settar inn upplýsingar um starfsfólk sumarsins í myndaalbúm á Fésbókarsíðu Hólavatns.

Starfsmannanámskeið sumarbúðanna


Þriðjudaginn 16. apríl var fyrsti námskeiðsdagur fyrir starfsfólk sumarbúðanna 2013. Um fjörtíu starfsmenn úr öllum sumarbúðum félagsins komu saman og meðal efnis þennan fyrsta dag var fræðsla um það hver við erum og hvað við boðum. Þá voru kenndir ýmsir leikir sem henta í sumarbúðastarfi bæði inni og úti.

Óskilamunir frá sumarstarfinu

Við viljum minna á að síðasti dagur til að vitja óskilamuna frá sumarstarfi KFUM og KFUK er 1. október ´12.

Mikið magn hefur safnast upp í Þjónustumiðstöðinni og viljum við hvetja foreldra til koma og sækja þessa muni. Í október verður óvitjuðum óskilamunum ráðstafað til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Fjölmenni við vígslu glæsilegrar nýbyggingar og kaffisölu á Hólavatni

Í gær, sunnudaginn 19. ágúst, fór fram vígsla nýrrar byggingar í sumarbúðum KFUM og KFUK á Hólavatni í Eyjafirði. Undanfarin ár hefur verið unnið hörðum höndum við að reisa glæsilega viðbót við húsið þar, sem bætir aðstöðu barna sem þar dveljast á sumrin, og starfmanna verulega.

Vígsluathöfnin sjálf fór fram utandyra í blíðskaparveðri, en talið er að um 170 manns hafi verið viðstaddir hana. Fleiri bættust svo í hópinn á hinni árlegu kaffisölu sem fór fram eftir athöfnina, en talið er að alls hafi allt að 300 manns heimsótt Hólavatn í gær.

Séra Sigfús Ingvason sá formlega um að vígja nýbygginguna og fór með blessun. Formaður bygginganefndar nýbyggingarinnar, Guðmundur Ómar Guðmundsson talaði til viðstaddra og sagði frá helstu atriðum í sögu verksins, sem hófst árið 2008. Fjöldi sjálfboðaliða hefur lagst á eitt við bygginguna og gefið óteljandi vinnustundir í þágu Hólavatns, með ýmsum ólíkum hætti.

Vígsla nýbyggingar og kaffisala á Hólavatni 19. ágúst

Næsta sunnudag, 19. ágúst, verður vígsluathöfn nýrrar byggingar á Hólavatni, sumarbúðum KFUM og KFUK á í Eyjafirði á Norðurlandi kl.14.

Nýbyggingin á Hólavatni var í fyrsta sinn notuð nú í sumarstarfi Hólavatns á undanförnum mánuðum, og er afar gagnleg viðbót við húsakynnin þar. Vígsluathöfnin er gleðiefni og merkur viðburður í sögu Hólavatns.

Að vígsluathöfninni lokinni verður árleg kaffisala Hólavatns. Þá gefst tækifæri til að kaupa kaffi og ljúffengar kaffiveitingar til styrktar starfinu á Hólavatni.

8. flokkur – Hólavatn: Annar dagur í Listaflokki

Þá heldur fjörið áfram á Hólavatni. Í gærkvöld var kvölvaka eins og venja er. Þá fengu tvö af fimm herbergjum að vera með atriði auk þess sem söng og leikhópur sem æft höfðu fyrr um daginn sýndu afrakstur hópastarfsins. Eftir hugleiðingu var svo kveikt bál niðri við vatnið og allar stelpurnar fengu að grilla sykurpúða. Stelpurnar voru svo fljótar að sofna og sváfu flestar vært þar til vakið var kl. 9 í morgun.

8. flokkur – Hólavatn: Fyrsti dagur í Listaflokki stúlkna

Í gær mættu 34 hressar stelpur til leiks að Hólavatni. Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið með besta móti í gær fór dagskráin á fullt strax eftir hádegið. Þar sem þessi flokkur er svokallaður “Listaflokkur” vinnum við á hverjum degi eitthvað listrænt og fengu stelpurnar í gær að velja á milli söng-, leiklistar- og myndlistarhóps. Það er greinilegt að hér eru miklir hæfilekar á ferð og sýndu hóparnir afrakstur sinn á kvöldvöku í gærkvöld.

7. flokkur – Hólavatn: Ævintýraflokkur stráka þriðji dagur.


Klukkan níu voru strákarnir vaktir, bæði þeir sem gistu innandyra og þeir sem sváfu undir berum himni. Þegar fánahyllingu var lokið héldu strákarnir inn í matsal þar sem þeir snæddu morgunverð. Eftir morgunmat var haldið á morgunstund og svo var bátafjör. Hádegisverður hófst klukkan 12:00 og var hólverskur grjónagrautur að hætti Hildar ráðskonu á borðstólnum.

7. flokkur – Hólavatn: Annar dagur í ævintýraflokki stráka


Um morguninn voru strákarnir vaktir og þeim sagt að tímabelti Hólavatns hefði tekið miklum breytingum um nóttina og matartímarnir allir í rangri röð. Því væri ekki að byrja morgunmatur heldur kvöldmatur. Með þessar upplýsingar í farteskinu fóru þeir út að fánastöng þar sem fyrsta fánahylling flokksins fór fram. Því næst héldu þeir inn í matsal og borðuðu ávaxtasúrmjólk.

7.flokkur – Hólavatn: Fyrsti dagur í ævintýraflokki stráka


Hópur drengja kom með rútunni á Hólavatn stundvíslega klukkan 10. Þá var farið yfir nokkrar reglur áður en strákunum var skipt í herbergi. Þegar þeir höfðu komið sér fyrir var strax hafist handan við að leika sér úti í góða veðrinu. Í hádeginu var borðað hólverskt skyr og smurt brauð. Því næst var haldið út á Wembley, fótboltavöll Hólavatns, þar sem farið var í leiki með það að leiðarljósi að hrista hópinn saman.

6.flokkur – Hólavatn: Fimmti dagur ævintýraflokks – 13. júlí 2012


Stúlkurnar voru vaktar um klukkan níu, bæði þær sem voru inni og þær sem höfðu sofið úti. Eftir fánahyllingu var morgunmatur og er óhætt að segja að flestar hefðu þær viljað sofa talsvert lengur. En okkur er ekki til setunnar boðið. Pakka þarf pjönkum því í dag er brottfarardagur.

6.flokkur – Hólavatn: Fjórði dagur ævintýraflokks – 12. júlí 2012


Í dag var sérstakur dagur því tvær stúlknanna áttu afmæli í dag og í dag er veisludagur. Því hófst dagurinn með afmælissöng og vöknuðu dömurnar ljúflega rétt um klukkan níu. Eftir fánahyllingu var morgunmatur og virtist matarlystin hafa aukist um nóttina – svo hraustlega tóku þær til matar síns. Eftir morgunstundina var frjáls tími sem nýttur var úti í glampandi sól og hita.

6.flokkur – Hólavatn: Þriðji dagur ævintýraflokks – 11. júlí 2012


Enn einn sólardagur í stórkostlegu umhverfi. Stúlkurnar voru vaktar klukkan 8:59 og voru mættir fimmtán mínútum síðar út að fánastöng. Þar sungu þær einum rómi fánasönginn Rís þú fáni á friðarvegi … og íslenski fáninn var dreginn að húni (eins og alla morgna í sumarbúðunum). Við tóku nokkrar útijógaæfingar til að hressa upp á stemmninguna í hópnum – gekk það vel enda tóku stúlkurnar vel á því í morgunmatnum.

6.flokkur – Hólavatn: Ævintýraflokkur 10. júlí 2012


Forstöðukona vakti stúlkurnar kl. 8:29 með blíðum orðum og söng. Að lokinni fánahyllingu kom í ljós að þetta var enginn venjulegur dagur. Allt var í rugli. Foringjar í öfugum fötum og enginn morgunmatur. Ráðskona bauð upp á kvöldmat í morgunsárið – heita súpu og smurt brauð. Í morgunstund var fjallað um þema vikunnar, bænina, og það að orða hugsanir sínar í samtali við Guð.