Skókassar

Móttaka á skókössum á Egilsstöðum í dag laugardaginn 3. nóvember

Í dag, laugardaginn 3. nóvember, verður tekið á móti skókössum í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4,  frá kl. 12-15.

ATH. Vegna veðurs verður fyrirhugaðri móttöku á Skagaströnd í dag frestað og í staðinn verður hún í Hólaneskirkju á morgun, sunnudaginn 4. nóvember,  frá kl. 11-15.

Góð heimsókn frá 5 og 7 ára börnum í Ísaksskóla

Heimsókn frá ÍsakskólaÞað voru um 40 fimm og sjö ára glaðlynd börn úr Ísaksskóla sem komu færandi hendi í KFUM og KFUK húsið í dag með jólapakka í skókassa. Petra Eiríksdóttir æskulýðsfulltrúi og Gyða Karlsdóttir framkvæmdastjóri tóku á móti þeim.

Fleiri myndir af heimsókninni.

Móttaka á skókössum í Grundarfirði og Stykkishólmi í dag fimmtudaginn 1. nóvember

Í dag, fimmtudaginn 1. nóvember, verður tekið á móti skókössum í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju frá kl. 16-18 og í Stykkishólmskirkju frá kl. 15-18.

Jól í skókassa í heimsókn hjá Virkum morgnum á Rás 2

Fulltrúi verkefnisins fór í heimsókn í hinn sívinsæla morgunþátt, Virkir morgnar, á Rás 2 í síðustu viku. Hlusta má á umfjöllunina hér:

http://www.ruv.is/sarpurinn/virkir-morgnar/23102012-1

Umfjöllunin byrjar á mínútu 32:50. Á myndinni má sjá glaðbeitta þáttastjórnendur ásamt Salvari sem gaf þeim góðgæti að launum fyrir að vera svona skemmtileg og jákvæð :)

Gunna Dís, Salvar og Andri Freyr með fallegan skókassa ásamt nammipokunum góðu sem þau fengu fyrir að vera svona jákvæð út í verkefnið.

 

Kynning í útvarpsþættinum Virkir morgnar á Rás 2

Í dag, þriðjudaginn 23. október, verður kynning á verkefninu í hinum vinsæla útvarpsþætti “Virkar morgnar” á Rás 2. Umfjöllunin verður um kl. 9:30.
Annars er það að frétta að undirbúningur er í fullum gangi og þegar eru kassar farnir að berast til á skrifstofu KFUM og KFUK á Holtavegi 28.

Búið er er að uppfæra tengiliðalistann fyrir tengiliði verkefnisins úti á landi. Endanlegar upplýsingar eru komnar um flesta staðina en enn á eftir að koma nánari upplýsingar um nokkra staði.

Svo minnum við á Fésbókarsíðu verkefnisins: www.facebook.com/skokassar

Jól í skókassa 2012 – undirbúningur er í fulllum gangi! Lokaskiladagur 10. nóvember

Undirbúningur Jól í skókassa er nú hafinn í níunda sinn! Nú er um að gera að fara að sanka að sér skókössum og finna til gjafir í þá. Síðasti skiladagur Jól í skókassa 2012 er laugardagurinn 10. nóvember í Reykjavík. Nánari upplýsingar koma síðar.

Myndir frá dreifingu jól í skókassa í janúar 2012

Haustið 2011 var verkefnið Jól í skókassa framkvæmt í áttunda sinn í samstarfi við KFUM og KFUK á Íslandi.

Í byrjun janúar 2012 fóru þrír fulltrúar Jól í skókassa til Úkraínu til að aðstoða við dreifingu á skókössum sem söfnuðust á Íslandi haustið 2011. Dreifing kassanna var í umsjá aðaltengiliðar Jól í skókassa í Úkraínu, Föður Evgeniy Zhabkovskiy , og fór fram á heimilum fyrir munaðarlaus börn, á sjúkrahúsum og í fangelsum.

Hægt er að sjá myndir úr ferðinni á eftirfarandi hlekk:

http://www.flickr.com/photos/skokassar/sets/72157629528034615/with/6813680174/

Ferð til Úkraínu í janúar 2012: Ferðasaga

156

1. janúar –  Sunnudagur

Þegar tekið var að líða á fyrstu nótt ársins 2012, lögðum við sendinefnd Jól í skókassa 2012, Mjöll, Salvar og Soffía, af stað í langt ferðalag til mið-suðurhluta Úkraínu, nánar tiltekið til þorpsins Subottsi í nágrenni Kirovograd. Tilgangur ferðarinnar var að aðstoða við dreifingu jólagjafa í skókösssum sem söfnuðust á Íslandi fyrir jólin 2011, aðallega til barna á því svæði í Úkraínu. Áður en lengra er haldið, bendum við á að hægt er að skoða myndir af afhendingum skókassa úr ferðinni hér á síðunni, til hægri, undir “Ljósmyndir”.

Útdeiling jólagjafa

Fulltrúar verkefnisins sem héldu utan nú um áramótin til að aðstoða við útdeilingu jólaskókassanna í Úkraínu komu til landsins á sunnudaginn var. Hér má sjá Soffíu Magnúsdóttur afhenda ungu barni jólagjöf.

Fulltrúar frá Jólum í skókassa komnir til Úkraínu

Þrír þátttakendur úr starfi KFUM og KFUK á Íslandi flugu til Úkraínu á nýársnótt til að aðstoða við útdeilingu jólagjafa í ár. Að þessu sinni fóru Salvar Geir Guðgeirsson, Mjöll Þórarinsdóttir og Soffía Magnúsdóttir. Þau skrifuðu á Facebook síðu verkefnisins í morgun.

Vid erum thrju uti nuna i Ukrainu, sem fulltruar verkefnisins. Logdum af stad a nyarsnott og komum a afangastad, i litlum bae vid Kirovograd, taepum solarhring sidar, threytt en sael. Uthlutudum fyrstu kossunum i gaer. Mikil gledi og eftirvaenting hja krokkunum. Vorum ad borda morgunmat nuna og erum a leidinni i fleiri uthlutanir. Allt gengur vel. Vedrid er gott. Kaerar kvedjur heim. Gledileg jol og gledilegt nytt ar.

Hægt er að fylgjast með ferðum þeirra á Facebook-síðu Jóla í skókassa.

Jólagjafirnar komnar til Úkraínu



Þær gleðifregnir bárust í dag að gámurinn með jólagjöfum fyrir börn og ungmenni í Úkraínu skilaði sér á leiðarenda í dag. Framundan er mikil vinna við að dreifa gjöfunum þar sem þeirra er þörf en nokkrir aðstandendur verkefnisins á Íslandi munu á næstu dögum halda til Úkraínu og taka þátt í því verkefni.

Kærar þakkir!

Það myndaðist nánast öngþveiti við Holtaveginn í gær þegar fjöldi manna lagði leið sína í hús KFUM&KFUK í Laugardalnum til að skila skókössum með jólagjöfum fyrir börn í Úkraínu. Það var mikil stemning og dagurinn gekk mjög vel. Við sem stöndum að verkefninu unnum til kl. 1 í nótt og þá var búið að koma 3.954 kössum í gáminn og ganga frá húsinu. Við eigum samt von á nokkrum kössum til viðbótar eftir helgi frá nokkrum sem að gleymdu sér. Þá kemur endanleg tala í ljós. Við viljum þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg við verkefnið og þeim sem að studdu það á einn eða annan hátt. Og síðast en ekki síst viljum við þakka öllum þeim sem að gáfu gjöf til Jól í skókassa í ár :) Við erum mjög þakklát fyrir gjafir ykkar.

Frábær dagur að baki

Lokaskiladagur Jóla í skókassa gekk framar vonum og í lok dagsins var búið að ganga frá 3954 jólagjöfum til barna í Úkraínu. Það voru glaðir en þreyttir aðstandendur verkefnisins sem héldu heim seint í gærkvöldi með þakklæti í hjarta til allra þeirra sem tóku þátt í verkefninu í ár.

Síðasti skiladagur Jól í skókassa er í dag, laugardaginn 12. nóvember

Í dag, laugardaginn 12. nóvember, er síðasti skiladagur fyrir verkefnið þetta árið. Þá er hægt að koma í hús KFUM&KFUK við Holtaveg 28, milli kl. 11:00 og 16:00, og skila skókassa. Þar mun fara fram sérstök myndasýning sem sýnir feril verkefnisins, léttar veitingar verða í boði í kaffiteríunni og hægt verður að setjast niður og lesa ferðasögur frá dreifingu kassanna frá liðnum árum. Allir eru hjartanlega velkomnir og við hlökkum til að sjá og hitta þá sem að sjá sér fært að mæta til okkar á síðasta móttökudeginum okkar.

Síðasti skiladagur Jól í skókassa er á morgun, laugardaginn 12. nóvember

Í dag, föstudag, hefur mikið verið að gerast í húsi KFUM&KFUK við Holtaveg. Hingað hafa streymt hópar frá grunn- og leikskólum með skókassa með jólagjöfum fyrir börnin og unglingana í Úkraínu. Meðal annars komu hópar frá leikskólunum Vinagarði og Regnboganum, og einnig fengum við heimsókn frá Mýrarhúsaskóla, Waldorfskólanum og Ölduselsskóla.

Á morgun, laugardaginn 12. nóvember, er síðasti skiladagur fyrir verkefnið þetta árið. Þá er hægt að koma í hús KFUM&KFUK við Holtaveg 28, milli kl. 11:00 og 16:00, og skila skókassa. Þar mun fara fram sérstök myndasýning sem sýnir feril verkefnisins, léttar veitingar verða í boði í kaffiteríunni og hægt verður að setjast niður og lesa ferðasögur frá dreifingu kassanna frá liðnum árum. Allir eru hjartanlega velkomnir og við hlökkum til að sjá og hitta þá sem að sjá sér fært að mæta til okkar á síðasta móttökudeginum okkar.