Innskráning

Hvað er TenSing?

TenSing er fjöllistastarf fyrir ungt fólk (15-20 ára).

TenSing er fyrir alla sem hafa áhuga á því að nota hæfileikana sína eða að kynnast nýjum hæfileikum.

Ten Sing byggir á þremur meginstoðum Kristur, menning og sköpun.
Kristur: Markmið Ten Sing er að laða ungt fólk til fylgdar við Jesú Krist.
Menning: Í Ten Sing eru menning og viðhorf ungs fólks lögð til grundvallar,
Sköpun: Í Ten Sing viljum við leysa úr læðingi þann sköpunarkraft sem býr í ungu fólki.

Hópurinn skiptist í hljómsveit, tónlistarhóp, leiklistarhóp og danshóp.

Stjórn Ten Sing er skipuð þeim Gylfa Braga Guðlaugssyni, Helgu Sif Helgadóttur, Ásthildi Guðmundsdóttur og Berglindi.

Frekari upplýsingar má fá á jonomar@kfum.is eða í síma 588-8899.

TenSing æfingar

TenSing æfingar eru á miðvikudagskvöldum kl. 19:30 í KFUM og KFUK húsinu Holtavegi 28.

Hópurinn skiptist í hljómsveit, tónlistarhóp, leiklistarhóp og danshóp. Hóparnir æfa fyrst hver í sínu lagi, þá er tekið stutt hlé og að því loknu æfir allur hópurinn saman.

Vertu velkominn með !

Tilkynningar

Ten Sing hefst 6. október 2010!

http://www.youtube.com/watch?v=yz7Ky6WQ7oQ