Innskráning

Kristileg skólahreyfing

KSH

Kristileg skólahreyfing er samstarfsvettvangur fyrir KSS (Kristileg skólasamtök) og KSF (Kristilegt stúdentafélag). Yfir KSH er stjórn sem kosin er á árlegu ársþingi og hlutverk hennar er að fylgjast með starfi félaganna og bera ábyrgð á starfsmannamálum en undanfarin ár hefur hreyfingin verið með skólaprest í hálfu starfi.


Sumarið 2008 hófst samstarf KSH og KFUM og KFUK um starfsmann og er nú æskulýðsprestur í fullu starfi fyrir báðar hreyfingarnar og hefur hann yfirumsjón með öllu ungmennastarfi (18 - 30 ára) á þeirra vegum.

Sr. Jón Ómar Gunnarsson gegnir nú starfi æskulýðsprests og hefur hann aðsetur í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK Holtavegi 28.

Vefsíða KSH

 

KSS

KSS, eða Kristileg skólasamtök, er félag fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára. Félagsmenn halda fundi á laugardagskvöldum kl. 20:30 að Holtavegi 28, húsi KFUM og KFUK, í Reykjavík.


Á KSS fundum syngjum við saman, fáum uppbyggjandi og jafnframt skemmtilega fræðslu um kristna trú og kitlum hláturtaugarnar í góðra vina hópi. Eftir fundi er svo yfirleitt einhver skemmtileg dagskrá við allra hæfi.


Félaginu er stjórnað af félagsmönnum sjálfum. Einu sinni á ári er kosið í fimm manna stjórn sem skipuleggur og ber ábyrgð á starfi félagsins. Einnig eru hinar ýmsu nefndir starfandi innan félagsins. Samfélagsnefnd sér um og skipuleggur dagskrána eftir fundi, árshátíðarnefnd heldur utan um hina stórglæsilegu árshátíð félagsins sem haldin er einu sinni á hverjum vetri, kynningarnefnd sér um öflugt kynningarátak félagsins í upphafi hvers vetrar og svona mætti lengi telja.


Í KSS er að finna afar öflugt tónlistarlíf þar sem margir hafa stigið sín fyrstu skref á framabraut tónlistarinnar. Einnig er leikfélagið Platitude starfandi okkar á meðal. Fótboltamót eru haldin a.m.k. einu sinni á ári við mikinn fögnuð félagsmanna. Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi innan félagsins í samfélagi við Guð og menn.

 
Á haustin og vorin fara KSS-ingar saman í Vatnaskóg á svokölluð skólamót. Þetta eru helgarferðir sem samanstanda af miklu fjöri og fræðslu um kristna trú ásamt því að vera tækifæri til þess að kynnast betur innbyrðis.

Biblíulestrar eru annan hvern fimmtudag yfir vetrartímann kl. 20 á Holtavegi 28. Þar leiðir æskulýðsprestur lestur og umræður um rit Biblíunnar.


Bænastundir eru haldnar á hverjum þriðjudegi kl. 20:15 í Bústaðakirkju í Reykjavík og hvetjum við félagsmenn eindregið til að koma saman og biðja fyrir landi og þjóð.


Það er tekið vel á móti öllum í KSS. Taktu skrefið! Við hlökkum til að sjá þig.

Vefsíða KSS


KSF

Kristilegt stúdentafélag (KSF) var stofnað 1936 og er félag innan Þjóðkirkjunnar. KSF er einnig aðili að IFES (International Fellowship of Evangelical Students) sem eru alþjóðleg samtök kristilegra stúdentfélaga.


Markmið félagsins er að sameina trúaða stúdenta og aðra á aldrinum 20-30 ára til þess að styrkja og glæða trúarlíf þeirra og boða fagnaðarerindið um Jesú Krist.


Félagið er með vikulega fundi á laugardögum klukkan 20:30, í Langholtskirkju, Sólheimum 13, Reykjavík. Á fundina mæta að meðaltali 25 manns á aldrinu frá 19-30 ára.


Einnig er haldið stúdentamót á hverjum vetri þar sem farið er út fyrir bæinn yfir eina helgi. Oftast er farið í einhverja af sumarbúðum KFUM og KFUK. Þar eru fengnir ræðumenn til að flytja Guðsorð, auk þess sem stundaðar eru íþróttir og útivist.

Vefsíða KSF