Föstudaginn 6.mars 2009 var rokkóperan !HERO eftir Eddie DeGarmo og Bob Farrell frumsýnd í Loftkastalanum. Það er KFUM og KFUK á Íslandi sem á veg og vanda að uppfærslunni.
Aðalhlutverk eru 9 og auk þess eru 16 dansarar og 20 manna kór. Alls komu um 70 manns að sýningunni þegar allt er talið.
Mikill metnaður er lagður í að öll umgjörð sýningarinnar verði sem best. Fagfólk á hverju sviði fyrir sig starfar á bakvið tjöldin við leikmynd, búninga, förðun, tæknimál og fl.
Tónlistarflóran í verkinu er fjölbreytt og spannar allt frá rokki og rappi yfir í popp og fallegar melódíur. En !HERO er ekki bara tónlistarveisla, sagan sem lifnar við á sviðinu í gegnum leik, söng og dans gerir þetta að einstæðri leikhúsupplifun.
!Hero heillar frá fyrstu mínútu. Tónlistin, sagan og boðskapurinn er sett fram á kröftugan og einlægan hátt. Sýningin kallar á viðbrögð áhorfenda við því sem er að gerast á sviðinu.
Þetta er nútímaleg sýning full af lífi, dönsum og grípandi tónlist…allir geta fundið sitt uppáhaldslag þar sem fjölbreytileikinn er mikill. Atburðarásin er hröð og alltaf eitthvað í gangi á sviðinu.
Rokkóperan !HERO
Hvað ef hann hefði fæðst í Betlehem í Pennsylvaníu?
Sagan í hnotskurn:
Heimurinn sem við sjáum í verkinu er gjörólíkur þeim heimi sem við þekkjum, heimur þar sem Jesús hefur aldrei verið til. Stjórn heimsins er í höndum ICON, alþjóðlegs ríkjabandalags. Inn í þennan heim fæðist drengurinn Hero (Jesús) í Betlehem í Pennsylvaníu. Hann neyðist til að flýja til Brooklyn, New York ásamt fjölskyldu sinni. Þar vex hann úr grasi og byrjar að prédika til fólksins, segir þeim að elska óvini sína og boðar nýtt konungsríki sem er ekki af þessum heimi. Þessi framganga hans vekur athygli ICON yfirvaldsins og óttast þeir þau áhrif sem boðskapur hans gæti haft. Þeir leggja því á ráðin um að losa sig við Hero … í eitt skipti fyrir öll. Inn í söguna fléttast persónur sem við þekkjum úr guðspjöllunum á borð við Maggie (Maríu Magdalenu), Jude (Júdas), Petrov (Pétur) og Mama Mary (María Mey). Einnig koma fyrir Kai (Kaífas), Pílatus, Devlin, yfirmaður ICON og fleiri.
Með aðalhlutverk fara:
Hero: Sigursveinn Þór Árnason
Petrov: Eiríkur Hilmar Rafnsson
Jude: Þorleifur Einarsson
Maggie: Ingunn Huld Sævarsdóttir
Mama Mary: María Magnúsdóttir
Devlin: Pétur Hrafnsson
Kai: Sigurður Ingimarsson
Hunter: Sævar Daníel Kolandavelu / Poetrix
Jairus: Davíð Tómas Tómasson / Dabbi T.
Að auki: 20 manna kór sem er einnig í hóphlutverkum og 16 dansarar.
Lifandi tónlist er á öllum sýningum og hljómsveitina skipa:
Jóhann Axel Schram Reed – hljómborð
Benedikt Daníel Valdez – hljómborð
Helgi Reynir Jónsson – Gítar
Björgvin Birkir Björgvinsson – Gítar
Árni Rúnar Inaba – Bassi
Gunnar Leó Pálsson – Trommur
Leikstjóri : Rakel Brynjólfsdóttir, S: 694 4009, rakel(hjá)hero.is
Tónlistarstjóri: Jóhann Axel Schram Reed, S: 847‐8023, jasser(hjá)hero.is
Dans og sviðshreyfingar: Petra Pétursdóttir, S: 869 6623, petra(hjá)hero.is
Tæknistjórn: Arnór Heiðarsson, S: 865 1423, arnor(hjá)hero.is
Fjármálastjóri: Guðmundur Karl Einarsson, S: 690 4005, gudmundur(hjá)hero.is
Rokkóperan !HERO
!HERO er upplifun sem erfitt er að lýsa með orðum – sjón er sögu ríkari