Ungmennastarf KFUM og KFUK er fyrir aldurshópinn 16 - 30 ára. Ungmennastarfinu er stýrt af ungmennunum sjálfum í samstarfi við æskulýðsprest. Leiðtogafræðsla félagsins fellur undir ungmennastarf sem og ýmis tilboð á alþjóðavettvangi. Starfsmaður ungmennastarfsins er sr. Jón Ómar Gunnarsson, æskulýðsprestur.
TenSing er fjöllistahópur fyrir ungt fólk (15-25 ára). Í TenSing eru allir velkomnir og engin krafa er gerð um að vera bestur, bara að vera tilbúinn að prófa eitthvað nýtt. Þar gefst tækifæri til að þroska hæfileika sína og uppgötva nýja. TenSing æfingar eru á miðvikudögum kl. 19:30 í KFUM og KFUK húsinu á Holtavegi. Smellið hér til að lesa meira.
Ýmsir smáhópar eru starfræktir í ungmennastarfinu. Í smáhópum hittast ungmenni með reglulegu millibili til þess að ræða það sem þeim liggur á hjarta, lesa í Biblíunni, fræðast og eiga góðar stundir. Í hverjum smáhóp er leiðtogi sem meðlimir hópsins geta leitað til. Hafir þú áhuga á að taka þátt í smáhópastarfi getur þú haft samband við æskulýðsprest, sem stýrir smáhópastarfinu.
Leiðtogaþjálfunin er fjölbreytt og skiptist annars vegar í 5 þrepa leiðtogaskóla og hins vegar í námskeið fyrir starfsmenn sumarbúða félagsins. Leiðtogaþjálfunin er ekki einungis góður kostur fyrir þá sem hugsa sér að starfa innan KFUM og KFUK heldur einnig þá sem vilja læra að koma fram fyrir hóp, efla sjálfstraustið og kynnast grundvallaratriðum kristinnar trúar.
KSS eru félagasamtök ungs fólks á aldrinum 15-20 ára. KSS heldur fundi á laugardagskvöldum kl.20:30 í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. KSS fundir eru afar skemmtilegir þar sem blandast saman skemmtidagskrá, tónlist og fræðsla. Tvisvar á ári eru haldin skólamót í Vatnaskógi og yfir veturinn eru ýmsir skemmtilegir viðburðir. Nánar má lesa um KSS á heimasíðu félagsins.
KSF eru félagasamtök stúdenta og er fyrir fólk á aldrinum 20-30 ára. Félagið er með fundi þriðja hvern miðvikudag kl. 20:00 á Holtavegi 28. Á milli funda hittast félagsmenn í smærri biblíuleshópum þar sem efni frá ræðumanni er rætt ásamt því að njóta andlegrar jafnt sem líkamlegrar næringar. Stúdentamót eru haldin einu sinni á ári. Nánar má lesa um KSF á heimasíðu félagsins.
KNS er systurfélag KSS og starfar á Akureyri fyrir ungmenni 16-20 ára. KNS heldur fundi á föstudagskvöldum kl. 19:00 í húsi KFUM og KFUK í Sunnuhlíð. Á fundum blandast saman skemmtidagskrá, tónlist og fræðsla. KNS tekur þátt í skólamótum KSS tvisvar á ári. Nánari upplýsingar um KNS veitir Jóhann Þorsteinsson í s.462-6330.
Evrópumót KFUM í Prag er stærsti viðburður KFUM í Evrópu en mótið verður haldið í þriðja sinn í byrjun ágúst 2013. Yfir 120 Íslendingar tóku þátt í Pragmótinu 2008 og settu svo sannarlega svip sinn á mótið með stórkostlegu atriði á lokakvöldi, sigri í fótboltamóti, eld- og ísmessu, smánámskeiði í ullarþæfingu og auðvitað með glaðværð, skemmtilegum leikjum og söng. Ferðin var algjörlega ógleymanleg. Undirbúningur fyrir mótið 2013 er þegar hafinn.