
Í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 í Reykjavík fer fram margskonar æskulýðsstarfsemi fyrir alla aldurshópa. M.a. er boðið upp á hefðbundið deildarstarf fyrir 9 - 12 ára stúlkur í YD KFUK.
Þá hittast Skógarvinir KFUM, þemadeild Vatnaskógar fyrir 12 - 14 ára Skógarmenn, reglulega í húsinu.
Stelpur 9 -12 ára hittast á mánudögum kl. 18:00-19:00
Leiðtogar í KFUK
Dagskrá
10. okt. - Karamelluspurningakeppni
17. okt. - Furðuíþróttir
24. okt. - Leikir
31. okt. - Jól í skókassa
7. nóv. - Fatalitir
14. nóv. - Spil
21. nóv. - Náttfatapartý
28. nóv. - Leikir
5. des. - Jólaundirbúningur
12. des. - Jólafundur
Skapandi er lista- og handverkshópur fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11-13 ára. Hópurinn er starfræktur í húsi KFUM og KFUK við Holtavegi 28 í Reykjavík. Aðeins 15 börn komast að. Þátttökugjald er 3.000 krónur.
Leiðtogar
Dagskrá Skapandi
29. september
Tiffany stimplar
13. október
Bakstur og kökuskreytingar
27. október
Origami
10. nóvember
Hárskreytingar
24. nóvember
Óvæntur fundur
8. desember
Kertamálun
Skógarvinir KFUM er hópur stráka sem munu hittast fimm sinnum á haustmisseri og taka þátt í skemmtilegri dagskrá. Allar samverur hefjast kl. 17:00 á föstudegi. Deildin er ætluð Skógarmönnum* á aldrinum 12-14 ára.
Leiðtogar
Aðeins 25 drengir komast að í starfinu og er þátttökugjald 9.500 krónur. Allar ferðir, matur og gisting er innifalið í þátttökugjaldinu.
* Skógarmenn eru þeir sem hafa dvalið tvær nætur eða fleiri í flokki í Vatnaskógi.
---
Dagskrá Skógarvina KFUM haustið 2011.
23. september
Kvöldferð í Vatnaskóg.
Farið í leiki, borðaður kvöldmatur og haldin kvöldvaka. Heimkoma um kl. 22:30.
7. október
Þrautakeppni í Laugardalnum.
Liðakeppni þar sem reynir á ratvísi, útsjónarsemi og að þekkja áttirnar. Glæsileg verðlaun. Dagskrá lýkur um kl. 19:30.
21. október
Ævintýraferð á Akranes.
Grillaðir hamborgarar á óvenjulegum stað, bryndreki skoðaður og boðið upp á einkabíósýningu. Heimkoma um kl. 22:30.
4.-5. nóvember
Ferð í Vatnaskóg.
Spennandi ævintýraferð þar sem drengirnir takast á við verkefni og ævintýri í Vatnaskógi á óvenjulegum tíma. Heimkoma á laugardegi um kl. 17:00.
18. nóvember
Landhelgisgæslan heimsótt.
Þyrlur, flugvélar og varðskip, alvöru græjur skoðaðar. Dagskrá lýkur um kl. 21:00.