Vorhátíð KFUM og KFUK er haldin í lok vetrarstarfsins og markar um leið upphaf sumarstarfsins því þá hefst skráning í sumarbúðir og á leikjanámskeið.
Á vorhátíðinni fer fram kynning á sumarstarfinu auk þess sem börn og unglingar úr vetrarstarfinu stíga á svið og taka þátt í tveggja tíma langri fjölbreyttri dagskrá. Dagskráin er þannig sett saman að hægt er að koma inn hvenær sem er og sitja eins lengi og hver vill. Kaffihús og sjoppa eru á staðnum fyrir þá sem vilja fá sér hressingu.
Á sama tíma fer fram skráning í sumarstarfið og hafa rúmlega 700 börn verið skráð á þessum degi undanfarin ár.