Innskráning

Ferðalög og mót

Á hverju ári eru nokkur ferðalög og mót í æskulýðsstarfinu sem allar deildir taka þátt í.  

Sameiginlegir viðburðir eru til þess ætlaðir að stuðla að hópefli í deildunum, veita tilbreytingu og fjölbreytni í starfinu og auka félagsvitund þátttakenda. Þannig fá þau tækifæri til þess að kynnast fleirum og upplifa að þau eru hluti af stærri heild.

Í yngri deildunum er haldið fótboltamót og brennómót og farið í vorferð í sumarbúðir KFUM og KFUK. Unglingadeildirnar halda landsmót og taka auk þess þátt í norrænu móti annað hvert ár.

Auk fastra liða eru ýmis námskeið og fleira í boði, t.d. gospelnámskeið og gítarnámskeið.

Þá er á hverju vori haldin vorhátíð þar sem vetrarstarfinu lýkur og sumarstarfið hefst.

Á haustmisseri 2011 eru eftirfarandi sameiginlegir viðburðir á dagskrá:

 

28.-30. október - Landsmót ÆSKÞ

Unglingadeildum KFUM og KFUK gefst kostur á að taka þátt í landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar sem fram fer á Selfossi dagana 28.-30. október. Gert er ráð fyrir allt að 700 þátttakendum á spennandi og skemmtilegu móti.

 

6. nóvember - Knattspyrnumót YD

Yngri deildum KFUM og KFUK, krakkar á aldrinum 9-12 ára er boðið að taka þátt í skemmtilegu knattspyrnumóti, þar sem áherslan er lögð á gleði og gaman. Deildirnar keppa sín á milli og fjörið er í fyrirrúmi.

 

12. nóvember - Lokaskiladagur Jóla í skókassa

Verkefnið Jól í skókassa er nú stór þáttur í haustdagskrá KFUM og KFUK á Íslandi, en flestar deildir leggja sitt af mörkum til að gleðja börn í Úkraínu um jólin. (sjá nánar: www.skokassar.net)

 

18.-19. nóvember - Miðnæturíþróttamót

Síðustu 10 árin hefur unglingum í starfi KFUM og KFUK gefist kostur á að taka þátt í öðruvísi íþróttamóti í Vatnaskógi.