KFUM og KFUK heldur landsmót unglingadeilda á hverju ári þar sem unglingar af öllu landinu hittast og eiga saman skemmtilega helgi. Mótið er haldið í sumarbúðunum í Vatnaskógi í mars. Rúmlega 100 unglingar víða af landinu hafa verið með síðustu árin ásamt leiðtogum. Undirbúningur mótsins er á ábyrgð æskulýðsfulltrúa KFUM og KFUK á Íslandi.
Mikilvægt er að taka með peninga fyrir mótsgjaldi (og laugardagsnamminu sem fæst í sjoppunni), inniskó, sundföt, svefnpoka, tannbursta og tilheyrandi, góða skó og hlýjan útivistarfatnað.
Mótsgjald fyrir mótið 2011 var 9.000 kr. það sem er innifalið í því eru rútuferðir fram og tilbaka, gisting, öll aðstaða í Vatnaskógi, efniskostnaður og allur matur.
Skráning fer fram hjá leiðtogum viðkomandi deilda. Forráðamenn þurfa að skrifa undir leyfisbréf og skal það afhent leiðtogum.
Nánari upplýsingar fást hjá leiðtogum í starfi KFUM og KFUK og í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK Holtavegi 28, sími 588 8899.
Sími í Vatnaskógi á meðan á móti stendur er 433 8959.