Innskráning

Knattspyrnumót yngri deilda

Í lok október á hverju ári er haldið knattspyrnumót yngri deilda KFUM og KFUK. Þar geta allir þátttakendur í æskulýðsstarfinu sem áhuga hafa myndað knattspyrnulið og tekið þátt í móti þar sem áhersla er lögð á skemmtilegan leik. Allir geta verið með og allir fá að keppa jafn mikið.

Mótið er haldið á laugardegi og er fyrir bæði kynin. Markmið með mótinu er m.a. að strákar og stelpur í starfi KFUM og KFUK hitti krakka í öðrum deildum.