Á hverju ári eru nokkur ferðalög og mót sem allar deildir taka þátt í.
Sameiginlegir viðburðir eru til þess ætlaðir að stuðla að hópefli í deildunum, veita tilbreytingu og fjölbreytni í starfinu og auka félagsvitund þátttakenda. Þannig fá þau tækifæri til þess að kynnast fleirum og upplifa að þau eru hluti af stærri heild.
Í yngri deildunum er haldið fótboltamót og spurningakeppni og farið í helgarferð í sumarbúðir KFUM og KFUK. Unglingadeildirnar halda miðnæturíþróttamót og landsmót og taka auk þess þátt í norrænu móti annað hvert ár.
Auk fastra liða er stundum fundið upp á nýjungum eins og gospelnámskeiði og skútusiglingu á Eystrasalti.
Þá er á hverju vori haldin vorhátíð þar sem vetrarstarfinu lýkur og sumarstarfið hefst.
Á vormisseri 2009 er þetta á dagskrá:
Spurningakeppni YD | 14. febrúar |
Landsmót UD í Vatnaskógi | 20. - 22. febrúar |
Brennómót YD | 22. mars |
Vorhátíð Holtavegi | 28. mars |
Vorferðir YD | 24. - 25. apríl |