Innskráning

Akureyri

Félagsheimili KFUM og KFUK Akureyri
Sunnuhlíð 12

Fundir fyrir krakka og unglinga eru haldnir í húsnæði félagsins í verslunarmiðastöðinni Sunnuhlíð. Húsið er opið í hálftíma fyrir fundi og er þá hægt að spila á spil, leika í fótboltaspili og snóker ásamt því að skoða teiknimyndablöð og spila Playstation leiki (Eye Toy, SingStar o.fl.). Ekki má gleyma því að nú er komið þythokkýborð sem er mjög gaman að prófa!

Yngri deildir eru fyrir 9 - 12 ára á mánudögum kl. 17.30 fyrir stelpur og á þriðjudögum kl. 17.30 fyrir stráka.


Unglingadeild er fyrir 13 - 15 ára stráka og stelpur á fimmtudögum kl. 20.00


KNS - Kristilegt næstum því stúdentafélag er fyrir 16 - 20 ára unglinga annað hvert föstudagskvöld kl. 20.00 í Sunnuhlíð.

 

Sviðsstjóri æskulýðssviðs KFUM og KFUK á Íslandi, Jóhann H. Þorsteinsson, hefur skrifstofu í Sunnuhlíð 12 á Akureyri og hefur umsjón með starfinu.