Innskráning

Yngri deildir 9-12 ára

Yngri deildir eru fyrir 9-12 ára krakka. Krakkarnir hittast einu sinni í viku í sinni deild og gera ýmislegt skemmtilegt saman t.d. fara í leiki, óvissuferðir, Pálínuboð, búa til nælur, mála á plexigler og ýmislegt fleira.  Á hverjum fundi er stutt helgistund.  Yfir veturinn eru ýmsir sameiginlegir viðburðir s.s. fótbolta- og brennómót og stutt ferðalag í sumarbúðirnar*.

Veturinn 2009-2010 eru yngri deildir á eftirfarandi stöðum:

Höfuðborgarsvæðið:
Digraneskirkja
Fella- og Hólakirkja
Garðabær
Grafarholt
Grensáskirkja
Holtavegur
Lindakirkja
Seljakirkja
Vesturbær

Suðurnes:
Grindavík
Keflavík
Njarðvík

Suðurland:
Hveragerði

Norðurland:
Akureyri
Dalvík
Ólafsfjörður

Hvammstangi

Unglingadeildir 13-15 ára

Unglingadeildir eru fyrir unglinga 13-15 ára. Þátttakendur hittast einu sinni í viku og er dagskráin í bæði skemmtileg, fróðleg og uppbyggjandi.  Það er aldrei að vita upp á hverju leiðtogarnir taka næst.  Í vetur verður tvisvar farið í stutt ferðalag annars vegar á miðnæturíþróttamót og hins vegar á landsmót í Vatnaskógi.

Veturinn 2009-2010 verða unglingadeildir á eftirfarandi stöðum:

Höfuðborgarsvæðið:
Breiðholtskirkja
Grensáskirkja
Lindasókn
Mosfellsbæ

Suðurnes:
Grindavík
Keflavík

Suðurland:
Hveragerði
Vestmannaeyjar

Norðurland:
Akureyri
Ólafsfjörður

Ungmennastarf 16-30 ára:

Ungmennastarf innan KFUM og KFUK er aðallega fólgið í þemadeildum og samstarfi við Kristilegu skólahreyfinguna en innan hennar starfa Kristileg skólasamtök fyrir 16 - 20 ára og Kristilegt stúdentafélag fyrir 20 - 30 ára.

Í vetur hefur innan KFUM og KFUK verið starfandi ljósmyndadeild og söngleikinn !HERO er hluti af ungmennastarfinu.

Á Akureyri starfar KNS eða Kristilegt næstum því stúdentafélag fyrir framhaldsskólanema í samstarfi við Glerárkirkju, Akureyrarkirkju og Hjálpræðisherinn og Fjölvítamín sem er fjölmenningarhópur sem starfar í Sunnuhlíð 12 á Akureyri.