Í lok sumars er boðið upp á helgardvöl í sumarbúðunum fyrir konur í Vindáshlíð (kvennaflokkur) og karla í Vatnaskógi (heilsudagar). Þar fléttast saman fræðsla,skemmtun, hvíld og góður félagsskapur. Í Vindáshlíð er hefð fyrir því að týna ber í miklum mæli í kvennaflokk ásamt því að sitja yfir handavinnu en í Vatnaskógi nota menn tímann á heilsudögum til að vinna ýmis verk við viðhald á húsum eða útisvæðum.
Þegar stúlknastarfinu er lokið í Vindáshlíð á haustin er haldinn kvennaflokkur yfir eina helgi, yfirleitt í lok ágúst. Kvennaflokkurinn er fyrir allar konur 17 ára og eldri og hefur dagskráin mótast af því að þetta eiga að vera hvíldar og uppbyggingardagar fyrir nútímakonur á öllum aldri. Fyrirlestrar um áhugaverð efni, skemmtilegar kvöldvökur og messa er meðal þess sem skipulögð dagskrá býður upp á en auk þess er góður tími til gönguferða, berjatínslu og annarrar útiveru og skemmtilegra rabb- og handavinnustunda í setustofu. Kvennadagar í Vindáshlíð eru þekktir fyrir góðan mat og skemmtilegan félagsskap.
Heilsudagar karla í Vatnaskógi
Á hverju hausti er ein helgi fyrir karlmenn 17 ára og eldri í Vatnaskógi. Þetta er ekki bara hvíldarhelgi heldur líka vinnuhelgi þar sem hluta dags er unnið að ýmsum viðhaldsstörfum í Vatnaskógi og geta menn valið þar það sem þeim hentar best að vinna. Auk þess eru fræðsluerindi, kvöldvökur og íþróttir á skipulagðri dagskrá og góður tími til að styrkja vináttubönd og binda ný. Heilsudagar karla eru þekktir fyrir góðan mat og skemmtilegan félagsskap.