Fjölskyldustundir KFUM og KFUK verða í húsi félagsins á Holtavegi 28 þriðja hvern sunnudag í mánuði kl. 15. Öllum ætti að vera ljóst mikilvægi þess að hin upptekna nútímafjölskylda verji tíma saman. Í vetur er ætlunin að leika okkur saman, tala saman, syngja saman, borða saman, biðja saman, föndra saman, ærslast saman og svo mætti lengi telja!
Hér er því kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að gera eitthvað skemmtilegt saman, sem í leiðinni styrkir líkama, sál og anda og getur verið liður í trúaruppeldi barnanna okkar.
Auk þess styrkir það félagsvitundina að hittast og leyfa börnunum að kynnast.
Á hverri samverustund verða sungnir fáeinir söngvar og flutt stutt hugvekja. Síðan verður eitthvað til gamans gert fyrir alla fjölskylduna og verður það nánar kynnt hverju sinni á heimasíðu KFUM og KFUK og í netpósti.
Í lok samverustundarinnar verða “Pálínu”-veitingar, en allir eru beðnir að taka eitthvert góðgæti með til að setja á sameiginlegt hlaðborð.
Umsjónarmenn fjölskyldusamveranna eru
Anna Magnúsdóttir
Guðmundur Jóhannsson
Guðrún Sæmundsdóttir
Kjartan Birgisson
Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir
Gísli Jónsson
Ólöf Jóna Jónsdóttir
Magnús Benedikt Guðjónsson