Innskráning

Fjölskyldustarf

Í sumarbúðunum í Vindáshlíð og Vatnaskógi er  boðið upp á fjölskyldusamverur þar sem fléttað er saman fræðslu og leik fyrir alla fjölskylduna.

Feðga- og feðginaflokkar í Vatnaskógi og mæðgnaflokkar í Vindáshlíð og Ölveri eru haldnir á hverju ári.

Fjölskyldustundir KFUM og KFUK eru haldnar á Holtavegi 28 þriðja hvern sunnudag í mánuði yfir vetrartímann.

Fjölskylduhelgi

í Vatnaskógi er fjölskylduhelgi haldinn í mars. Dagskráin er miðuð við alla aldurshópa og þar er m.a. að finna listasmiðju, gönguferðir og margvíslegar íþróttir. Skógarmannakvöldvökur, guðsþjónusta og fræðslustundir fyrir foreldra og börn setja einnig svip sinn á dagskrána.

í Vindáshlíð er fjölskylduhelgi haldin í febrúar. Þar blandast saman spennandi fyrirlestrar fyrir foreldrana og skapandi verkefni fyrir börnin. Einnig gefst góður tími til frjálsrar samveru.

Sæludagar

eru fjölskylduhátíð sem haldin er í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina. Þar gista flestir þátttakendur í tjöldum og njóta saman náttúru og samveru. Dagskráin er fjölbreytt og við allra hæfi: listasmiðjur, íþróttir, vatnasport, umræðustundir, gönguferðir og fleira. Skógarmannakvöldvökur, hæfileikasýning barna og tónleikar eru líka fastir liðir dagskrárinnar.

Feðga og feðginaflokkar í Vatnaskógi

Haustið 1994 var í fyrsta skipti gerð tilraun með flokk í Vatnaskógi fyrir feður og syni og mættu 77 feðgar í Vatnaskóg, en flokkurinn stóð yfir eina helgi. Markmiðið með flokknum var að efla tengsl feðga og styrkja feður í föðurhlutverkinu, auk þess að gefa feðgum kost á að skemmta sér saman og styrkja líkama, sál og anda. Feðgaflokkar þar sem faðir og sonur og jafnvel afi koma og dvelja saman í Vatnaskógi hafa notið vaxandi vinsælda og hafa þeir verið haldnir á hverju hausti síðan. Haustið 2002 var boðið upp á þrjá feðgaflokka í Vatnaskógi og var hvert sæti skipað. Virðist sem feðgaflokkarnir hafi mætt þörf í nútímasamfélagi og sannað þannig gildi sitt.

Við miklar vinsældir feðgaflokka voru forsvarsmenn Vatnaskógar spurðir hvort stúlkur og feður þeirra hefðu ekki möguleika á að koma í sambærilega flokka fyrir feður og dætur þeirra. Eftir nokkurn þrýsting var gerð tilraun með feðginaflokk vorið 2001 og gafst hann svo vel að ákveðið var að gera hann að árlegum viðburði. Ljóst er að Skógarmenn KFUM hafa hug á að halda áfram að bjóða stúlkum og feðrum þeirra í feðginaflokka í framtíðinni. Skoðið flokkaskrá Vatnaskógar og kynnið ykkur dagsetningar flokkanna í ár.

Nánari upplýsingar má fá í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588 8899

Mæðgnaflokkar í Vindáshlíð og Ölveri

Vinsældir feðgaflokka kölluðu fram viðbrögð hjá mæðrum og dætrum þeirra um sambærilega dagskrá fyrir þær. Sumarbúðirnar í Ölveri riðu á vaðið og héldu fyrsta mæðgnaflokkinn haustið 1998 og hafa haldið slíka flokka á hverju hausti síðan. Þá kom krafa frá mæðrum sem höfðu verið í Vindáshlíð sem stúlkur um að mæðgnaflokkur yrði einnig haldinn í Vindáshlíð. Var brugðist við þeirri áskorun og býður Vindáshlíð nú upp á mæðgnaflokk á hverju ári. Dagsetningar mæðgnaflokkanna er að finna á flokkaskrá Vindáshlíðar og Ölvers.

Fjölskyldustundir á sunnudögum

Fjölskyldustundir KFUM og KFUK verða í húsi félagsins á Holtavegi 28 þriðja hvern sunnudag í mánuði kl. 15. Öllum ætti að vera ljóst mikilvægi þess að hin upptekna nútímafjölskylda verji tíma saman.  Í vetur er ætlunin að leika okkur saman, tala saman, syngja saman, borða saman, biðja saman, föndra saman, ærslast saman og svo mætti lengi telja!

Hér er því kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að gera eitthvað skemmtilegt saman, sem í leiðinni styrkir líkama, sál og anda og getur verið liður í trúaruppeldi barnanna okkar.

Auk þess styrkir það félagsvitundina að hittast og leyfa börnunum að kynnast.

Á hverri samverustund verða sungnir fáeinir söngvar og flutt stutt hugvekja. Síðan verður eitthvað til gamans gert fyrir alla fjölskylduna og verður það nánar kynnt hverju sinni á heimasíðu KFUM og KFUK og í netpósti.
Í lok samverustundarinnar verða “Pálínu”-veitingar, en allir eru beðnir að taka eitthvert góðgæti með til að setja á sameiginlegt hlaðborð.