Innskráning

Basar KFUK 2011

Basar KFUK 2011

Félagshúsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í Reykjavík
laugardaginn 26. nóvember 2011 kl. 14:00 – 17:00

Hinn árlegi og stórglæsilegi Basar KFUK verður haldinn í félagshúsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 laugardaginn 26.nóvember kl.14.  Þetta er í 102.sinn sem Basarinn er haldinn. Hann er mikilvæg fjáröflun fyrir starfsemi KFUM og KFUK, en allur ágóði af honum rennur til starfsemi félagsins. Basarinn er orðinn vel þekktur fyrir fallegt og vandað handverk KFUK-kvenna, og ýmislegt ljúffengt góðgæti sem þær hafa bakað af kunnri færni. 

Á boðstólnum verða handgerðir hlutir, jólaskraut, dúkar, leikföng, fatnaður.  Fylgihlutahornið (húfur, slæður, hanskar, töskur ofl.) verður á sínum stað og að sjálfsögðu heimabaksturinn, en KFUK- konur eru þekktar fyrir gómsætar jólasmákökur, bollur og tertur. Á basarnum verða einnig til sölu notaðir en vel með farnir smáhlutir og fylgihlutir (slæður, hanskar, töskur skartgripir o.fl.).

Á basardeginum verður hægt að kaupa nýbakaðar ilmandi  vöfflur, kaffi og kakó. 

Tekið er við gjöfum á basarinn í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í vikunni áður en basarinn er haldinn. Föstudaginn 25. nóvember verður móttaka í húsinu til kl. 21. Allir ágóði af basarnum rennur til starfs KFUM og KFUK .

KFUK-konur hvetja alla til að styðja við framtakið og láta gott af sér leiða með því að gera eitthvað sem hægt er að selja á basarnum: kökur af öllum gerðum og stærðum, sultur eða annað matarkyns. Einnig er hægt að styðja við basarinn með því að gefa til hans nýja eða notaða (og vel með farna) smáhluti og fylgihluti.

Allir eru hjartanlega velkomnir á Basar KFUK, sem er kjörið tækifæri til að styðja við starfsemi félagsins, en um leið festa kaup á fallegu handverki og gómsætu góðgæti, rétt áður en aðventan gengur í garð.

 

Fyrsta basarauglýsingin

Basar KFUK í 100 ár

Fyrsti basar KFUK var haldinn 11. desember 1909 að danskri fyrirmynd.  KFUK konan Valgerður Lárusdóttir (síðar Briem) átti veg og vanda að skipulagningu basarsins en hún hafði tekið þátt í framkvæmd basars KFUK í Danmörku.

Á þessum fyrsta basar KFUK voru seldar eingöngu "kvenlegar hannyrðir á afarlágu verði, hentugar til jólagjafa" eins og stóð í auglýsingu fyrir basarinn en einnig var boðið upp á skemmtiatriði, söng og upplestur. Á basarnum var einnig hægt að kaupa lotterí miða og freista gæfunnar í jólahappdrættinu.  Guðrún móðir sr. Friðriks Friðrikssonar hélt utan um kaffisölu samhliða basarnum.

Í undirbúningi fyrir basarinn höfðu KFUK stúlkur haldið saumafundi einu sinni í viku þar sem saumað var á basarinn og höfðu þær árangur erfiðis síns því allt seldist upp á fyrsta basarnum nema tveir pottaleppar og nokkrir lotterí miðar.

Upp frá þessu hefur basar KFUK verið mikilvægur liður í fjáröflun félagsins.  Vikulegir saumafundir voru hluti af félagsstarfi KFUK fram eftir öldinni og enn í dag hittast KFUK konur reglulega á saumafundum, þó með óformlegra sniði sé.

Á saumafundi 11. maí 1912 var stofnaður sjúkrasjóður KFUK að frumkvæði fátækrar félagsstúlku sem lagði til 2 krónur í stofnfé. Hlutverk sjóðsins var að styrkja félagskonur í alvarlegum veikindum. Gáfu KFUK stúlkur frjáls framlög í sjóðinn á saumafundum.  Árið 1919 var ákveðið að láta 10% af ágóða basarsins renna til sjóðsins hefur sá siður haldist síðan.

Sjá nánar sögu basarsins hér