Í meira en 100 ár eða frá árinu 1902 hefur KFUM og KFUK haldið vikulega fundi yfir vetrartímann fyrir fullorðna.
Fundirnir eru kynjaskiptir og nefnast AD KFUK og AD KFUM þar sem AD stendur fyrir aðaldeild. Aðaldeild er fyrir fullgilda félagsmenn 18 ára og eldri en allir sem áhuga hafa eru velkomnir á fundina.
Fundir í aðaldeild eru hefðbundnir og fylgja fundaformi sem hefur haldist að miklu leyti frá upphafi en fundarefni er nútímalegt og fjölbreytt.
Almennur söngur og hugleiðing eru fastir liðir á hverjum fundi og sama má segja um kaffidrykkjuna eftir fund þar sem fundargestir kaupa sér kaffibolla og meðlæti og spjalla saman.
Nokkrum sinnum á ári eru sameiginlegir fundir AD KFUM og KFUK.
Aðaldeild KFUM heldur vikulega fundi í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í Reykjavík. Fundirnir eru á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 nema annað sé tekið fram. Allir karlar eru velkomnir. Eftir fundina er boðið upp á kaffiveitingar gegn vægu gjaldi.
AD - nefnd KFUM skipa þeir Ársæll Aðalbergsson, Ólafur Sverrisson, Sigurbjörn Þorkelsson og Tómas Torfason. Umsjón með kaffiveitingum eftir fundi hefur Oddrún Jónasdóttir Uri.
AD KFUM - Dagskrá Vor 2012
12. janúar
Efni: Biblíulestur úr Opinberunarbókinni. Umsjón og hugvekja: Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Stjórnun: Ólafur Sverrisson.
19. janúar
Efni: Sótt að kirkju og kristni, hverjir? Hvers vegna? Umsjón og hugvekja: Halldór Elías Guðmundsson.
Stjórnun: Ársæll Aðalbergsson.
26. janúar
Efni: Staða kristni í Reykjavík við upphaf nýs árs. Umsjón og hugleiðing: Gísli Jónasson, prófastur.
Stjórnun: Tómas Torfson.
2. febrúar
Efni: Að vera prestur í Noregi: reynslan og upplifunin. Viðtal við sr. Þráin Haraldsson.
Stjórnun: Hörður Geirlaugsson.
9. febrúar
Efni: Litið niður og til baka - horft upp og fram á veginn. Umsjón og hugvekja: Geir Jón Þórisson, fráfarandi yfirlögregluþjónn.
Stjórnun: Sigurbjörn Þorkelsson.
16. febrúar
Hátíðar- og inntökufundur KFUM og KFUK í húsi félagsins að Holtavegi í Reykjavík.
Nýir félagar boðnir formlega velkomnir í félagið við hátíðlega athöfn.
Umsjón fundarins er í höndum stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.
23. febrúar
Efni: Ár í VR. Umsjón og hugvekja: Stefán Einar Stefánsson, formaður VR.
Stjórnun: sr. Jón Ómar Gunnarsson.
1.mars
Efni: Skaftáreldar og hrunið. Umsjón og hugvekja: Dr. Einar Sigurbjörnsson.
Myndir: Umsjón : Dr. Leifur Þorsteinsson.
Stjórnun: Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson
8. mars
Efni: Kristniboðsvikan: dagskrá fundar fléttast inn í Kristniboðsvikuna (4.-11. mars). Nánar auglýst þegar líður að fundinum.
15. mars
Efni: Líf og starf Maríusystra. Umsjón og hugvekja: Ómar Kristjánsson, framkvæmdastjóri.
Stjórnun: Kári Geirlaugsson.
22. mars
Efni: „Lítið til fugla himinsins“. Umsjón: Þórarinn Björnsson guðfræðingur.
Hugvekja: Sr. Ólafur Jóhannsson
Stjórnun: Guðmundur Ingi Leifsson.
29. mars
Aðalfundur Vatnaskógar.
5. apríl
Efni: Réttarhöldin yfir Jesú skoðuð frá sjónarhóli lögfræðinnar. Umsjón: Davíð Örn Sveinbjörnsson, lögfræðingur.
Hugvekja: Sveinbjörn Gizurarson, lyfjafræðingur.
Stjórnun: Ársæll Aðalbergsson.
12. apríl
Vorferð.
19. apríl
Kaffisala og vortónleikar Skógarmanna. Dagskrá nánar auglýst þegar nær dregur.
Aðaldeild KFUK heldur vikulega fundi í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í Reykjavík yfir vetrartímann. Fundirnir eru á þriðjudagskvöldum kl. 20:00 nema annað sé tekið fram. Allar konur eru velkomnar. Eftir fundina er boðið upp á kaffiveitingar gegn vægu gjaldi.
AD nefndin er skipuð Margréti Möller, Maríu Aðalsteinsdóttur, Sigrúnu Gísladóttur og Þórdísi Klöru Ágústsdóttur.
AD KFUK – Dagskrá Vorið 2012
10. janúar
Efni: Ég er hið lifandi vatn. Biblíulestur í umsjón Irmu Sjafnar Óskarsdóttur.
Stjórnun: Margrét Möller.
17. janúar
Efni: „Ljósa" : Kristín Steinsdóttir rithöfundur kemur í heimsókn og les úr bók sinni.
Arnþrúður Steinunn Björnsdóttir hefur hugleiðingu.
24. janúar
Efni: Valgerður Hjartardóttir, djákni og hjúkrunarfræðingur fjallar um birtingarform sorgarinnar.
Stjórnun: Sigrún Gísladóttir.
31. janúar
Efni: Heimsþing KFUK í Zurich í Sviss 2011. Félagskonur segja frá í máli og myndum.
Stjórnun: Þórdís Klara Ágústsdóttir.
7. febrúar
Efni: Biblíulestur í umsjón Höllu Jónsdóttur.
Stjórnun: Sigrún Gísladóttir.
16. febrúar
Hátíðar - og inntökufundur KFUM og KFUK í húsi félagsins að Holtavegi í Reykjavík.
Nýir félagar boðnir formlega velkomnir í félagið við hátíðlega athöfn.
Umsjón fundarins er í höndum stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.
21. febrúar
Efni: Að skarta sínu fegusta: Tvær kynslóðir kvenna sem fást við skartgripagerð.
Helga Steinunn Hróbjartsdóttir hefur hugleiðingu.
Stjórnun: Margrét Möller.
28. febrúar
Efni: Sagan hennar Audrey. Helga Kolbeinsdóttir, guðfræðinemi, leyfir gestum að skyggnast inn í stutt líf hennar Audrey. Helga flytur einnig hugleiðingu.
Stjórnun: Þórdís Klara Ágústsdóttir.
6. mars
Kristniboðsvika 4. - 11. mars.
Dagskrá fundarins fléttast inn i dagskrá Kristniboðsvikunnar, sem verður nánar auglýst þegar líður að fundinum.
13. mars
Aðalfundur Vindáshlíðar á Holtavegi 28.
Umsjón: Stjórn Vindáshlíðar.
20. mars
Efni: „...Því söngurinn gæddi það gleði..“ : Anna Guðmundsdóttir og dætur sjá um fundarefnið.
Stjórnun: Sigrún Gísladóttir.
27. mars
Efni: Biblíulestur í umsjón Bryndísar Möllu Elídóttur.
Stjórnun: Þórdís Klara Ágústsdóttir.
3. apríl
Kyrravika: Enginn fundur hjá AD KFUK.
10. apríl
Enginn fundur í vikunni eftir páska.
17. apríl
Efni: Þrep til velsældarar - líkami, sál og andi. Umsjón: Ragnheiður Grétarsdóttir, jógakennari.
Ragnheiður Sverrisdóttir hefur hugleiðingu.
Stjórnun: María Aðalsteinsdóttir.
24. apríl
Afmælisfundur KFUK.
Vorið er komið: Vorferð í Hvalsneskirkju. Umsjón: Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
Dagskrá og fyrirkomulag ferðarinnar verður nánar auglýst þegar nær dregur.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
<//span>