Fjölskyldu- og fullorðinsstarf KFUM og KFUK á sér langa sögu. Fundir fyrir fullorðna, svo kallaðar aðaldeildir (AD) hafa verið haldnir frá 1902 og sunnudagssamverur félagsins hafa í gegnum tíðina verið mikilvægur hluti starfsins. Á undanförnum 20 árum hefur orðið aukin þörf á samverustundum fjölskyldunnar og hefur félagið svarað þeirri þörf á margvíslegan hátt. Fjölskyldu- og fullorðinsstarfi félagsins er að mestu leyti skipulagt og framkvæmt af sjálfboðaliðum.
AD - vikulegir fundir fyrir fullorðna
Kvenna- og karlafundir eru haldnir vikulega í KFUM og KFUK húsinu á Holtavegi 28. Konur hittast á þriðjudögum kl. 20. Karlar hittast á fimmtudögum kl.20. Smellið á hlekkinn til að sjá dagskrá haustsins og lesa nánar um AD.
Sunnudagssamverur
Á hverjum sunnudegi eru haldnar samverur í KFUM og KFUK húsinu á Holtavegi 28. Góð tónlist, söngur og innihaldsríkur boðskapur er í öndvegi ásamt því sem fjallað verður um málefni sem tengjast á einn eða annan hátt starfi félagsins. Smellið á hlekkinn til að lesa meira um sunnudagssamverurnar.
Basar KFUK
Árlega halda KFUK konur basar til styrktar starfi KFUM og KFUK. Á basarnum er að finna ýmislegt góðgæti og vandað íslenskt handverk. Basarinn í ár verður haldinn laugardaginn 27. nóvember kl. 14. í KFUM og KFUK húsinu Holtavegi 28. Smellið á hlekkinn til að lesa meira.
Fjölskyldustarf KFUM og KFUK byggir að miklum hluta á viðburðum og ferðalögum sem eru sérsniðin fyrir fjölskyldur eða einstaka hluta fjölskyldunnar. Smelltu hér til að lesa nánar um fjölskyldustarf KFUM og KFUK