Helgina 31. ágúst – 2. september verður karlaflokkur í Vatnaskógi, ætlaður karlmönnum á aldrinum 17-99 ára.

Tilgangur þeirra er að styrkja líkama, sál og anda.  Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu fyrir Vatnaskóg.  Andinn og sálin eru styrkt með erindum, biblíufræðslu, bænastundum, kvöldvöku og messu.

Verð á Heilsudaga karla er kr. 12.500. Hægt er að ganga frá skráningu á kfum.is eða í síma 588-8899.

 

Dagskrá í Karlaflokki

Fimmtudagur 30. ágúst
Á staðnum er skólahópur – nýnemaferð MK sem nota hluta af staðnum, en áhugasamir eru velkomnir á staðinn til að undirbúa eða hefja vinnu í þágu Vatnaskógar.  Matur og gisting í boði en engin formleg dagskrá.

Föstudagur 31. ágúst
14:30    ATH: breyttur staður og tími! Golfmót „VATNASKÓGUR OPEN“ (fyrir þá sem vilja). Leiksstaður Brautarholtsvöllur á Kjalarnesi. Vallargjald greiðist á staðnum.  Umsjón: Ársæll Aðalbergsson
19:00    Léttur kvöldverður
20:00    Erindi: 10 ár frá hruni – höfum við eitthvað lært?
Dr. Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur og fyrrv. fjármála- efnahagsráðherra
21:30    Frjáls tími
22:00    Kvöldhressing
22:30    Guðsorð fyrir svefninn
Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson
23:00    Bænastund í kapellu
23:30    Gengið til náða

Laugardagur 1. september
08:00    Vakið
08:20    Müllersæfingar og fánahylling
08:30    Morgunmatur
09:00    Biblíufræðsla:  Jahve og El – Guð nær og fjær. Tvær Guðsmyndir í Gamla Testamentinu.
Halldór Elías Guðmundsson djákni og fræðslufulltrúi Pilgrim Congregational UCC, Ohio, USA
10:00    Vinna fyrir Vatnaskóg
11:00    „Ellefukaffi“
12:00    Matur
12:30    Höllun
13:00    Vinna fyrir Vatnaskóg
15:30    Kaffi
16:00    Fótboltaleikur á íþróttavelli, slökun í heitu pottunum, veiði á vatninu ofl.
19:00    Hátíðarkvöldverður
20:30    Hátíðarkvöldvaka
Um kvöldvökuna sjá feðgarnir Sigurbjörn Þorkelsson,  Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson,  Geirlaugur Sigurbjörnsson og Páll Steinar Sigurbjörnsson
22:30    Kvöldkaffi
23:15    Bænastund í kapellu

Sunnudagur 2. september
09:00    Vakið
09:20    Müllersæfingar og fánahylling
09:30    Morgunmatur
10:00    Biblíufræðsla: Jesús og spámennirnir. Hvað er réttlæti?
Halldór Elías Guðmundsson djákni og fræðslufulltrúi Pilgrim Congregational UCC, Ohio, USA
11:00    Frágangur
12:00    Matur
13:00    Gönguferð frá Fossá í Hvalfirði yfir í Vindáshlíð
14:00    Messa í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð
15:00    Kaffisala Vindáshlíðar – verð kr. 2500 fyrir fullorðna, kr. 1000 fyrir 7-12 ára, kr. 0 fyrir 0-6 ára

* Á föstudeginum er í boði golfmót fyrir áhugasama. Leiknar verða 9 holur leikstaður Brautarholtsvöllur.
Tilkynna þarf sérstaklega ef menn hyggjast taka þátt í mótinu hjá: arsaell@kfum.is eða í síma 899-7746. Vallargjald þarf að greiða sérstaklega.

 

Vinna í þágu Vatnaskógar – dæmi um verkefni:

  1. Fjarlægja greinar úr skóginum eftir skógarhögg í vor
  2. Viðhald á íþróttasvæði (hreinsa gróður af braut, hreinsa ræsi, lagfæra tréverk, mála mörk)
  3. Ýmis verkefni í bátaskýli
  4. Mála glugga á Birkiskála I
  5. Mála körfuboltavöll undir körfu við íþróttahús
  6. Mála norðurhlið Gamla skála
  7. Stækka rjóður við Vatnabúðir
  8. Klippa marg-toppa grenitré
  9. Höggva eldivið
  10. Tína rusl
  11. Uppsetning á hillum o.fl. í þvottaherbergi í Birkiskála 2
  12. Slá Oddakotsstíginn
  13. Ýmis vinna í kringum nýja skógarkofann
  14. Merkja skógarstíga
  15. Skanna slidesmyndir

Verið hjartanlega velkomnir!