Ungleiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir 15–17 ára byggst á tveimur sjálfstæðum helgarnámskeiðum á vetri. Á milli námskeiða fá þátttakendur verklega þjálfun á vettvangi starfsins. Námskeiðin kölluðum við áður 24 stundir, því að í upphafi voru þau aðeins í rúman sólarhring. En nú erum við hætt að nota það nafn, enda stendur námskeiðið frá föstudagskvöldi fram á sunnudag. Næsta námskeið verður haldið í Ölveri dagana 15.-17. september 2017.

Fyrir 15–17 ára

Á námskeiðinu er boðið upp á fræðslu fyrir 15–17 ára ungleiðtoga (fædda 2000, 2001 og 2002). Með leiðtogaþjálfuninni viljum við auka hæfni og efla sjálfstraust. Við viljum hjálpa ungu fólki að vera leiðtogar í eigin lífi og auka getu þeirra til að takast á við þau fjölmörgu tækifæri sem þeim bjóðast.

Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK er hugsuð fyrir alla sem hafa áhuga á að starfa sem leiðtogar í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK, bæði í sumar- og vetrarstarfi félagsins. Hægt er að lesa nánar um leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir 15-17 ára á slóðinni http://www.kfum.is/leidtogathjalfun/leidtogathjalfun-fyrir-15-17-ara/.

Hvað lærir maður?

Í leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK er fræðslu skipt upp í fjóra efnisflokka og þess gætt að á hverju námskeiði sé eitthvað kennt úr hverjum flokki.

K – kristin fræðsla
F – félagsmálafræðsla
U – ungmennalýðræði
M – mannrækt

Verð og skráning

Námskeiðið er hluti af ungleiðtogaþjálfun KFUM og KFUK og kostar 29.500 kr. hvert misseri. Innifalið í því gjaldi er helgarnámskeiðið í Ölveri (rútuferðir, gisting og matur) ásamt ferðum og þátttöku í viðburðum misserisins, starfsgögn og lokasamvera.

KFUM og KFUK greiðir námskeiðsgjaldið fyrir þá sem leggja sitt af mörkum sem aðstoðarleiðtogar í vetrarstarfi félagsins. Skráning fer fram á skráningarsíðu KFUM og KFUK, www.sumarfjor.is. Viðburðinn er að finna undir flokknum vetrarstarf KFUM og KFUK. Opið er fyrir skráningu frá 1. september 2017.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.kfum.is eða hjá Hjördísi Rós æskulýðsfulltrúa í síma 588-8899 eða á hjordis@kfum.is.

Bæklingur um námskeiðið á PDF með ítarlegri dagskrá.