Hin árlega kaffisala Ölvers fer fram sunnudaginn 20. ágúst frá kl. 14 – 17.

Á kaffisölunni gefst tækifæri á að heimsækja yndislegt umhverfi og húsakost Ölvers, gæða sér á ljúffengum veitingum og  styrkja um leið starfsemina þar. Aðgangseyrir er 2000 kr en 1000 kr fyrir börn (12 ára og yngri) og frítt fyrir leikskólabörn.

Allir eru hjartanlega velkomnir.