Í byrjun febrúar hefja Skógarvinir göngu sína á ný á vormisseri. Skógarvinir KFUM eru hópur stráka sem taka þátt í starfi KFUM og KFUK með sérstakri áherslu á Vatnaskóg. Skógarvinir hittast reglulega alls fimm sinnum í vor og taka þátt í skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá (sjá hér fyrir neðan).
Hópurinn  er ætlaður drengjum á aldrinum 12-14 ára.

Dagskráin hefst kl. 17:00 á föstudagskvöldum, en mæting er í hús KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík.

Aðeins 25 drengir komast að í Skógarvini. Þátttökugjald er 8.500 kr., en innifalið í þeirri upphæð eru allar ferðir, matur og gisting. Skráning hefst 25. september klukkan 9:00 í síma 588-8899 og einnig á skraning.kfum.is .

Á heimsíðu Vatnaskógar, www.vatnaskogur.is verður dagskrá Skógarvina uppfærð og munu tilkynningar, fréttir af starfinu og myndir birtast þar.

 

Dagskrá Skógarvina vorið 2012:

3. febrúar.

Skógarmannafundur á Holtavegi: Uppbygging í Vatnaskógi kynnt.

Farið í leiki – Síðdegishressing  – Dagskrá lýkur kl. 19:00.

 

17. febrúar

RÚV/ Sportið: Heimsókn á Rúv  til  Þorkels Gunnars íþróttafréttamanns.

Síðdegishressing – Mæting á Holtaveg og heimkoma á sama stað um  kl. 19:00.

 

2. mars

Hellaskoðun: Raufarhólshellir skoðaður

Vinsamlega komið með vasaljós og hjálm

Kvöldmatur   – Heimkoma á Holtaveginn um kl. 20:30.

 

16.- 17. mars

Ferð í Vatnaskóg:

Spennandi ævintýraferð þar sem drengirnir takast

á við verkefni og ævintýri í Vatnaskógi á óvenjulegum tíma.

Heimkoma á laugardeginum kl.14:00.

 

30. mars

Laser tag.

Lindakirkja heimsótt – Kvöldmatur

Dagskrá lýkur kl. 21:00.

 

Umsjónarmenn Skógarvina vorið 2012 eru:

Ársæll Aðalbergsson 50 ára

Benedikt Snær Magnússon 22 ára.

Styrmir Magnússon  36 ára

Þór Bínó Friðriksson  25 ára

 

Skógarmenn – Áfram að markinu!