
Hin árlega flugeldasala KFUM og KFUK verður 28. – 31. desember í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Flugeldasalan verður staðsett í kjallara í suðurenda hússins, gegnt leikskólanum Vinagarði.

Hin árlega flugeldasala KFUM og KFUK verður 28. – 31. desember í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Flugeldasalan verður staðsett í kjallara í suðurenda hússins, gegnt leikskólanum Vinagarði.
Kæru félagsmenn og aðrir lesendur.
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar KFUM og KFUK óskar ykkur og ástvinum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með von um að þið eigið gleðiríka jólahátíð og njótið Guðs blessunar.
Hin árlega Þorláksmessustund KSH verður haldin í Friðrikskapellu að Hlíðarenda sunnudaginn 23. desember n.k. kl. 23.30.
Lokað verður í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK fimmtudaginn 27. desember og föstudaginn 28. desember.
Við óskum ykkur ánægjulegrar aðventu og jólaundirbúnings.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar KFUM og KFUK á Íslandi

Þriðja sunnudag í aðventu, þann 16. desember, verður síðasta sunnudagssamkoma ársins 2012 haldin í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, kl. 20.

Miðvikudaginn 12. desember verður aðventukvöld í Friðrikskapellu kl. 20.00.
Annan sunnudag í aðventu, sunnudagskvöldið 9. desember verður samkoma á Holtavegi 28 kl. 20.

Fimmtudaginn 6. desember verður sameiginlegur aðventufundur AD KFUM og AD KFUK.
Að vera sjálfboðahreyfing er það sem gerir KFUM og KFUK að þeirri einstöku og sérstöku hreyfingu sem hún vissulega er. Á hverjum degi, allt frá stofnun KFUM í London, hefur skuldbinding og framtíðarsýn milljóna sjálfboðaliða á heimsvísu hjálpað okkur að ná markmiðum og breyta lífum fólks.
Vegna sameiginlegs aðventufundar AD KFUM og AD KFUK fimmtudaginn 6. desember verður ekki hefðbundinn AD KFUK fundur þriðjudaginn 4. desember.

Minnum á að hinn árlegi og glæsilegi Basar KFUK verður haldinn í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 laugardaginn 1. desember kl. 14-17. Á boðstólnum verður fallegt og vandað handverk og gómsætar kökur, t.d. jólasmákökur, jafnvel hinar ómótstæðilegu sörur, bollur og tertur, sultur og marmelaði.
Fyrsta sunnudag í aðventu, sunnudagskvöldið 2. desember verður samkoma á Holtavegi 28 kl. 20.
Fimmtudaginn 29. nóvember verður haldinn AD KFUM fundur í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 20.
Fallnir stofnar – 100 ár frá fæðingu Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar heiðursfélaga KFUM.
Þriðjudaginn 27. nóvember verður haldinn AD KFUK fundur í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 20.
Að þessu sinni verður fjallað um þjóðbúninga fyrr og nú.