Þriðjudagskvöldið 6.desember kl.20 verður hinn árlegi, sameiginlegi aðventufundur aðaldeilda KFUM og KFUK haldinn að Holtavegi 28, Reykjavík.

Að þessu sinni er undirbúningur fundarins í höndum AD – nefndar KFUK. Kristín Möller verður með upphafsorð og bæn, en yfirskrift fundarins er: „Trúin er að treysta“.

Rannveig Sigurbjörnsdóttir flytur minningarbrot um föður sinn, sr. Sigurbjörn Einarsson biskup í tilefni 100 ára ártíðar hans. Sr. Karl Sigurbjörnsson biskup flytur aðventu – og jólahugvekju.

Karlakór KFUM og KFUK syngur fallega aðventusöngva undir stjórn Laufeyjar G. Geirlaugsdóttur, og Þórdís Klara Ágústsdóttir stjórnar fundinum.

Kaffi og glæsilegar kaffiveitingar verða á boðstólnum og jólastemmning verður ríkjandi.

Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að njóta hátíðlegrar aðventukvöldstundar í góðum félagsskap komandi þriðjudagskvöld.