Alþjóðleg leiðtogaráðstefna Global Leadership Summit (GLS) verður haldin í annað sinn á Íslandi 5.-6. nóvember n.k. í Digraneskirkju Hún er ein stærsta samkirkjulega ráðstefna sem haldin er í heiminum með yfir 120 þúsund þátttakendum frá 57 löndum. Þverkirkjulegur samstarfshópur hefur undanfarið ár unnið að undirbúningi ráðstefnunnar hér á landi.
Fyrir hverja er GLS?
GLS er fyrir kristna leiðtoga s.s. presta, djákna, æskulýðsleiðtoga, sóknarnefndir og annað starfsfólk kirkna, safnaða og félaga. Þessi ráðstefna gagnast einnig leiðtogum- og stjórnendum á öllum sviðum þjóðlífsins eða hafa áhuga á leiðtogafræðum.
Tilgangur GLS er að vera vettvangur þar sem kristnir leiðtogar geta hist árlega til að eiga ánægjulegar og uppbyggilegar stundir. Þar fái þeir bestu fræðslu sem völ er á, innblástur og hvatningu til að ná enn betri árangri og öðlast meiri ánægju í störfum sínum, trúarlífi og einkalífi. Öll trúarleg ágreiningsefni eru lögð til hliðar en þess í stað stuðlað að einingu meðal kristinna manna.
Frekari upplýsingar veitur Jón Ómar (jonomar(hjá)kfum.is). Nánari upplýsingar er einnig að finna á heimasíðunni www.gls.is. Þar er einnig hægt að skrá sig á ráðstefnuna.
Þann 6. október hækkar þátttökugjaldið í 12.000 krónur. Áfram mun kosta 8.000 krónur fyrir námsmenn, atvinnulausa, lífeyrisþega og hópa með 5 eða fleiri þar sem einn raunverulegur greiðandi stendur að baki. Athugið að flest stéttar- og verkalýðsfélög greiða námskeiðsgjaldið að hálfu eða öllu leiti.
Þeir sem eru leiðtogar í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK fá styrk til þátttöku – hafið samband við Jón Ómar Gunnarsson (jonomar(hjá)kfum.is).