Í haust verður Alfa-námskeið fyrir ungt fólk á vegum KFUM og KFUK í samstarfi við ÆSKR. Námskeiðið er fyrir allt ungt fólk sem hefur áhuga á því að læra meira um lífið og tilveruna, og hefst í félagshúsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík á morgun, þann 6.október.
Námskeiðið verður á miðvikudagskvöldum, í alls tíu skipti, í húsi KFUM og KFUK frá kl. 17.30-19.30. Þátttökugjald er kr.6000. Léttur kvöldverður verður í boði á námskeiðinu. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega á námskeiðið, hægt er að mæta án þess að hafa boðað komu sína.
Alfa-námskeiðið hófst í Englandi fyrir u.þ.b. 20 árum, og er nú haldið í um 130 löndum. Fjallað er um grundvallaratriði kristinnar trúar á námskeiðinu, en meðal þeirra spurninga sem er varpað fram og leitast við að svara, eru:
– Hver er tilgangur lífsins?
– Hver var og er Jesús Kristur?
– Hvernig varð Biblían til?
– Hvernig getum við orðið viss í trúnni?
Á Alfa-námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í skapandi umræðum um lífið og tilveruna. Námskeiðið er opið öllum sem vilja leita svara við spurningum um tilgang lífsins, kynna sér grundvallaratriði kristinnar trúar, sem trúa og ekki trúa, og langar að velta fyrir sér hvaða gildi móta líf okkar og samfélag.
Frekari upplýsingar um námskeiðið veitir Jón Ómar Gunnarsson, æskulýðsprestur KFUM og KFUK, tölvupóstfang hans er: jonomar(hjá)kfum.is .