Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin í Vindáshlíð á annan dag hvítasunnu, mánudaginn 1. júní. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, mun messa í Hallgrímskirkju í Kjós kl. 14.00 og hefst kaffisalan í beinu framhaldi og stendur til klukkan 18.00. Á boðstólnum verður girnilegt bakkelsi og rjúkandi heitt kaffi. Allir hjartanlega velkomnir!