Laugardaginn næstkomandi verður Ten Sing æfing á Holtaveginum á vegum Ten Sing Norway hópsins. Á æfingunni fá allir að spreyta sig í söng, tónlist, leiklist og dans. Æfingin byrjar klukkan 10.00 og verður fram eftir degi. Þátttakendur geta keypt sér mat gegn vægu gjaldi í hádeginu á Holtaveginum.
Ten Sing Norway hópurinn mun síðan sýna listir sínar á KSS fundi um kvöldið.

Ef þið eigið hljóðfæri takið þau með!